fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024
Fréttir

Svona skiptust atkvæðin í Söngvakeppninni – „Þessi hvimleiðu mistök höfðu áhrif á báða þátttakendur í einvíginu“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 4. mars 2024 15:27

Söngvararnir sem kepptu til úrslita.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar öll sms-atkvæði eru talin saman, hvort sem þau voru greidd með því að smella á tengil í appinu eða með því að senda beint með hefðbundnum hætti, sést að það hefði engu breytt um lokaniðurstöðuna þótt öll sms-atkvæði sem sigurlagið fékk í einvíginu hefðu farið til þess lags sem lenti í 2. sæti. 

RÚV harmar að þetta hafi gerst og mun leita allra leiða til að sjá til þess að slíkt gerist ekki aftur. Það er ákaflega mikilvægt að kosningin í Söngvakeppninni sé hafin yfir allan vafa og mun RÚV gera ráðstafanir til að svo verði í næstu keppni. 

Þessi hvimleiðu mistök höfðu áhrif á báða þátttakendur í einvíginu, en engin áhrif á úrslit keppninnar eins og rakið er hér að framan og því standa úrslitin eins og þau voru tilkynnt sl. laugardagskvöld,

segir í yfirlýsingu RÚV í dag vegna kosningar á Úrslitakvöldi Söngvakeppninnar 2024 laugardaginn 2. mars. Undir yfirlýsinguna skrifar Rúnar Freyr Gíslason, framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar 2024. 

Miklar umræður sköpuðust á samfélagsmiðlum eftir keppnina og sögðust margir, bæði í ummælum á samfélagsmiðlum og í skilaboðum til DV, að er þau reyndu að kjósa Bashar Murad, sem tapaði í kosningaeinvígi sínu við Heru Björk eftir það þau tvö höfðu orðið hlutskörpust fimm flytjenda á lokakvöldinu í fyrri umferð úrslitanna, að þá hafi það ekki verið hægt og hafi birst tilkynning um að símanúmerið sem tilheyrði lagi Bashars væri suspected spam“.

Sjá einnig: Eurovision:RÚV bíður svara um hvort mistök hafi átt sér stað í símakosningunni 

Í yfirlýsingu RÚV segir að þeim hafi borist ábendingar um atriði sem varða framkvæmd kosningar á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar. Lúta þær að sms-kosningu í gegnum smáforritið RÚV stjörnur, flokkun símtala og smáskilaboða sem ruslnúmera í tilteknum símum og gjaldfærslu fyrir greidd atkvæði. 

Í smáforritinu/appinu RÚV stjörnur er hægt að greiða atkvæði sem eru gjaldfærð á greiðslukort greiðenda en ekki í gegnum kerfi símafélaganna. Þetta er meginvirkni appsins og ástæða þess að RÚV notar viðkomandi app. Með því gefst þeim sem ekki eru með áskrift hjá símafélögunum tækifæri til að kjósa. Ekkert hefur komið fram annað en að þessi kosning hafi gengið fullkomlega eðlilega fyrir sig. 

Í appinu er einnig hægt að smella á símanúmer keppenda og kjósa þannig með hefðbundnum hætti í gegnum kerfi símafélaganna. Það er þessi hluti kosningarinnar í appinu sem umræðan hefur snúist um. Framleiðendur kosningaappsins hafa rannsakað málið og sent okkur sínar niðurstöður. Þeir hafa tjáð okkur að í seinni umferð kosninganna, hinu svokallaða einvígi, hafi þeir fundið handvirka innsláttarvillu með sms-númerum beggja keppenda sem notuð voru þegar senda átti sms úr appinu yfir í kerfi símafélaganna. Þetta varð til þess að hvorugt laganna fékk þau sms-atkvæði sem því voru ætluð úr appinu. Framleiðendurnir rýndu í öll kosningagögnin og segja að þetta hafi haft áhrif á mjög fáa notendur og engin áhrif á lokaniðurstöðuna, þar sem atkvæðin voru svo fá. Þeir harma að þetta hafi gerst og hafa beðist velvirðingar á því. 

Þess má geta að atkvæði greidd með sms eru mjög lítill hluti atkvæða í einvíginu, innan við 2% af öllum greiddum atkvæðum. Þegar öll sms-atkvæði eru talin saman, hvort sem þau voru greidd með því að smella á tengil í appinu eða með því að senda beint með hefðbundnum hætti, sést að það hefði engu breytt um lokaniðurstöðuna þótt öll sms-atkvæði sem sigurlagið fékk í einvíginu hefðu farið til þess lags sem lenti í 2. sæti.

Svona skiptust atkvæðin milli Heru og Bashar

Til nánari glöggvunar eru hér niðurstöður seinni símakosningar á milli laganna tveggja: 

Hera Björk – Scared of Heigts; atkvæðafjöldi innhringinga: 57.994, fjöldi SMS-atkvæða: 1.109.
Bashar Murad – Wild West; atkvæðafjöldi innhringinga: 33.267, fjöldi SMS-atkvæða: 1.005.
 

Atkvæði greind sem „ruslnúmer“ (e. Spam) 

RÚV greinir einnig frá að ábendingar bárust um að ákveðin kosninganúmer hefðu verið greind sem „ruslnúmer“ (e. spam). Segir í yfirlýsingu að RÚV óskaði eftir að Vodafone, sem sá um hefðbundna sms- og innhringikosningu kvöldsins, kannaði það. „Vodafone hefur greint RÚV frá því að í ákveðnum tegundum símtækja, sé hægt að virkja eða afvirkja þjónustu sem merkir ákveðin símanúmer sem „ruslnúmer“. Er þetta notað til að verjast hringingum úr svokölluðum spam-númerum. Það hefur ekkert með þjónustu símafyrirtækjanna að gera heldur liggur ábyrgðin hjá framleiðendum símtækjanna og notendunum sjálfum. Það er þó ekki augljóst að þessi valmöguleiki komi í veg fyrir að viðkomandi notandi geti hringt í umrætt númer. 

Vodafone kannaði málið einnig hjá öðrum fjarskiptafyrirtækjum og segir að allar gáttir á milli Vodafone, Nova og Símans hafi virkað í kosningunni. Þar kemur fram að öll sms og allar hringingar hafi skilað sér rétt og myndað gjaldfærslur hjá fjarskiptafélögum. Stundum getur tekið nokkra daga að skrá þær gjaldfærsluupplýsingar svo þær verði sýnilegar notendum. Öll fjarskiptafélögin hafi prófað öll kosninganúmerin með sms og hringingum.  Þess ber að geta að RÚV kemur ekki nálægt gjaldfærslu fjarskiptafélaganna. Um hana sjá fjarskiptafélögin sjálf. 

Lagahöfundar lagsins í 2. sæti vilja óháða rannsókn 

Aðstandendur lagsins sem lenti í öðru sæti á laugardaginn hafa farið fram á óháða rannsókn á framkvæmd kosningarinnar. RÚV hefur, í samráði við framkvæmdaaðila kosningarinnar (Vodafone og Choicely), boðið þeim að vera í beinu sambandi við þessa aðila til að fara í gegnum öll gögn. RÚV leggur, nú sem fyrr, ríka áherslu á gegnsæi og að allar upplýsingar sem lúta að kosningunni séu opinberar.“

Til að varpa enn frekara ljósi á framkvæmd og niðurstöðu kosninganna er hér birtur fjöldi atkvæða á úrslitakvöldinu. 

Úrslit 2. mars 

Úrslitakeppni Söngvakeppninnar er tvískipt. Í fyrri hlutanum vega atkvæði sjö manna dómnefndar helming á móti atkvæðagreiðslu almennings í gegnum síma eða app. Tvö stigahæstu lögin komast áfram í einvígi og eru flutt aftur. Þá hefst seinni hlutinn með annarri kosningu almennings auk þess sem atkvæði dómefndar og almennings úr fyrri kosningunni fylgja báðum lögunum í einvígið. 

Niðurstaða fyrri kosningar almennings í úrslitum 2. mars 

  • Bashar Murad – Wild West: 26.359 atkvæði 
  • VÆB – Bíómynd: 15.727 atkvæði 
  • Hera Björk – Scared of Heights: 15.406 atkvæði 
  • Sigga Ózk – Into The Atmosphere: 14.595 atkvæði 
  • ANITA – Downfall: 10.124 atkvæði 

Sjö manna dómnefnd hafði 50% vægi á móti atkvæðum almennings í fyrri kosningunni. 

Niðurstaða dómnefndar í úrslitum 2. mars 

  • Bashar Murad – Wild West: 21.304 atkvæði 
  • Hera Björk – Scared of Heights: 16.661 atkvæði 
  • Sigga Ózk – Into the Atmosphere: 16.114 atkvæði 
  • ANITA – Downfall: 14.476 atkvæði 
  • VÆB – Bíómynd: 13.656 atkvæði 

Heildarúrslit fyrri kosningar (kosning almennings og atkvæði dómnefndar samanlögð) 2. mars 

  • Bashar – Wild West: 47.663 atkvæði 
  • Hera Björk – Scared of Heights: 32.067 atkvæði 
  • Sigga Ózk – Into the Atmosphere: 30.709 atkvæði 
  • VÆB – Bíómynd: 29.383 atkvæði 
  • ANITA – Downfall: 24.600 atkvæði 

Tvö stigahæstu lögin komust í hið svokallaða einvígi og hófst þá seinni atkvæðagreiðsla kvöldsins. 

Úrslit seinni kosningar (einvígis) almennings 2. mars 

  • Hera Björk – Scared of Heights: 68.768 atkvæði 
  • Bashar Murad – Wild West: 49.832 atkvæði 

Lagið Scared of Heights vann því einvígið með 18.936 atkvæðum þegar aðeins almenningur kaus á milli laganna tveggja. Þá var atkvæðum fyrri kosningar, frá almenningi og dómnefnd, 

bætt við atkvæðin sem lögin fengu í einvíginu og fengin út lokaúrslit á milli laganna tveggja. 

Lokaúrslit Söngvakeppninnar 2. mars 

  • Hera Björk – Scared of Heights: 100.835 atkvæði 
  • Bashar Murad – Wild West: 97.495 atkvæði 

Lagið Scared of Heights vann því keppnina með 3.340 atkvæðum. 

Atkvæði dómara 

Hér má sjá hvernig hver dómari kaus. Dómarar voru beðnir að raða lögunum í röð eftir gæðum að eigin mati. 

Dómari 1: 

  • Bashar Murad Wild West 
  • Sigga Ózk Into the Atmosphere 
  • ANITA Downfall 
  • Hera Björk Scared of Heights 
  • VÆB Bíómynd 

Dómari 2: 

  • Sigga Ózk Into the Atmosphere 
  • Bashar Murad Wild West 
  • Hera Björk Scared of Heights 
  • VÆB Bíómynd 
  • ANITA Downfall 

Dómari 3: 

  • Bashar Murad Wild West 
  • ANITA Downfall 
  • Hera Björk Scared of heights 
  • Sigga Ózk Into the atmosphere 
  • VÆB Bíómynd 

Dómari 4: 

  • Bashar Murad Wild West 
  • ANITA Downfall 
  • Sigga Ózk Into the Atmosphere 
  • VÆB Bíómynd 
  • Hera Björk Scared of Heights 

Dómari 5: 

  • Hera Björk Scared of heights 
  • Bashar Murad Wild west 
  • VÆB Bíómynd 
  • Sigga Ózk Into the atmosphere 
  • ANITA Downfall 

Dómari 6: 

  • Bashar Murad Wild West 
  • VÆB – Bíómynd 
  • Hera Björk Scared of heights 
  • Sigga Ózk Into The Atmosphere 
  • ANITA Downfall 

Dómari 7. 

  • Hera Björk Scared of heights 
  • Bashar Murad Wild West 
  • Sigga Ózk Into The Atmosphere 
  • ANITA Downfall 
  • VÆB Bíómynd 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Þetta hafði þjóðin að segja um kappræðurnar í kvöld – „Hjálp. Hjálpið mér. Ég á svo erfitt með þetta. Ég get samt ekki slökkt“

Þetta hafði þjóðin að segja um kappræðurnar í kvöld – „Hjálp. Hjálpið mér. Ég á svo erfitt með þetta. Ég get samt ekki slökkt“
Fréttir
Í gær

Helga spurði Jón Gnarr óvæntrar spurningar sem vakti kátínu

Helga spurði Jón Gnarr óvæntrar spurningar sem vakti kátínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stórfurðulegt skuldamál – Segjast hafa lánað konu í Hafnarfirði tugi milljóna samkvæmt munnlegu samkomulagi

Stórfurðulegt skuldamál – Segjast hafa lánað konu í Hafnarfirði tugi milljóna samkvæmt munnlegu samkomulagi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Theodór: Átakanlegt að horfa á lítil börn fá kíghósta – „Eiginlega bara hósta þangað til þau blána og missa meðvitund“ 

Theodór: Átakanlegt að horfa á lítil börn fá kíghósta – „Eiginlega bara hósta þangað til þau blána og missa meðvitund“ 
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúi í Laugardal orðinn þreyttur á suði frá sendidrónum AHA – Eigandi segir engan truflandi hávaða af drónunum

Íbúi í Laugardal orðinn þreyttur á suði frá sendidrónum AHA – Eigandi segir engan truflandi hávaða af drónunum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fordæma skemmdarverk á Útilegumanninum

Fordæma skemmdarverk á Útilegumanninum