Hjón létust í slysinu og kærði dóttir þeirra blaðamann Vísis vegna fréttar sem birtist um málið um hálftíma eftir að tilkynnt var um slysið. Taldi hún fréttina og myndbirtingu sem fylgdi brjóta gegn 8. grein alþjóðlegra siðareglna blaðamanna.
Með fréttinni birtist aðsend mynd sem tekin var á vettvangi og sýndi myndin aðstæður á slysstað. Grár pallbíll sást á myndinni en ökumaður og farþegi í bílnum létust í slysinu. Taldi kærandi að með myndbirtingunni hefði blaðamaðurinn brotið gegn friðhelgi einkalífs foreldra hennar sem á þeim tíma sem myndin var tekin voru látin inni í bílnum.
Í niðurstöðu Siðanefndar kemur fram að fréttir af alvarlegum umferðarslysum varði almannahagsmuni og eigi erindi til almennings.
„Á myndinni sem fylgir fréttinni, sem er helsta kæruefnið, sést vettvangur slyssins og aðstæður á slysstað. Skotið er vítt og ekki er hægt að greina bílnúmer. Á myndinni sést að um gráan pallbíl er að ræða, en frekari upplýsingar um bílinn er ekki hægt að sjá á myndinni. Siðanefnd telur að ekki hafi verið farið ógætilega í myndbirtingu, enda hafi myndbirtingin verið til þess fallin að sýna aðstæður á slysstaðm, en auðkennandi upplýsingar um bílinn á borð við bílnúmer, er ekki sýnileg,“ sagði í niðurstöðunni.
„Af þeim sökum er það mat Siðanefndar að ekki hafi verið farið ógætilega í myndbirtingu. Fréttin og myndin birtust um hálfri klukkustund eftir að tilkynning hafði borist um slysið. Það átti sér stað á fjölförnum vegi og því ekki hlægt að gera athugasemd við myndbirtingu svo skömmu eftir að það átti sér stað.“