fbpx
Miðvikudagur 22.apríl 2026
Fréttir

Stofnhús þrefaldaði fjölda seldra íbúða með nýrri nálgun

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 11:53

Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og Júlí Heiðar Halldórsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Byggingafélagið Stofnhús er að ljúka við byggingu fimm hæða fjölbýlishúss með 22 fullbúnum íbúðum við Hnjúkamóa 16 í Þorlákshöfn. Íbúðirnar fóru í sölu síðasta haust og framan af var salan nokkurn veginn í takt við almennt ástand á húsnæðismarkaði. Það var því ljóst að þörf væri á að fara nýjar leiðir til að ná til tilvonandi kaupenda.

Í því samhengi byggði Stofnhús á farsælu samstarfi sínu við Sahara og ákveðið var að fara óvenjulega leið og voru leikara- og tónlistarparið Júlí Heiðar Halldórsson og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, alltaf kölluð Dísa, fengin til liðs við verkefnið. Líklega er þetta í fyrsta sinn sem áhrifavaldar koma með þessum hætti að markaðssetningu fasteigna hér á landi.

Áhrif þessarar nýju nálgunar létu ekki á sér standa eins og segir í tilkynningu.

„Áður en herferðin fór í loftið um miðjan febrúar höfðu sex íbúðir selst, en í kjölfar herferðarinnar seldust 12 íbúðir til viðbótar. Alls eru því 18 af 22 íbúðum seldar einungis mánuði síðar. Við höfum unnið töluvert með Sahara og samstarfið hefur verið farsælt, þannig að við treystum þeim til að finna verkefninu þann farveg sem myndi skila árangri,“ segir Jónas Páll Viðarsson, framkvæmdastjóri Stofnhúsa, og er ánægður með árangurinn sem hefur náðst í þessu markaðsátaki.

Sigurður Svansson, framkvæmdastjóri Sahara, Jónas Páll Viðarsson, framkvæmdastjóri Stofnhúsa, og Sveindís Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Sahara.

Þurftu að hugsa út fyrir boxið

Að sögn Sigurðar Svanssonar, framkvæmdastjóra Sahara, er lykillinn að árangrinum meðal annars gagnkvæmt traust.

„Stofnhús er viðskiptavinur sem er tilbúinn að skoða allar hugmyndir og það skapar svigrúm til að gera nýja og skemmtilega hluti. Við vitum að miðlablöndun er sífellt að breytast og miðlar á borð við Facebook, Instagram og TikTok eru nýttir með mismunandi hætti til að ná til ólíkra aldurshópa. Möguleikar fasteignaverkefna til að ná til ákveðinna markhópa hafa hingað til verið takmarkaðir og því þurftum við að hugsa út fyrir boxið, með það fyrir augum að ná til ungs fólks og fyrstu kaupenda,“ segir Sigurður.

Útfærslan á herferðinni var jafnframt lykilatriði. Hugmyndin kviknaði á hugmyndafundi og fólst í því að leyfa áhrifavöldum að gista í sýningaríbúð.

„Sú nálgun gjörbreytir upplifun þeirra sem sjá auglýsingaefnið og auðveldar fólki að sjá sig fyrir sér í aðstæðunum. Árangur þessarar herferðar er til vitnis um mikilvægi þess að viðskiptavinur treysti sinni auglýsingastofu til að leita nýrra og óhefðbundinna leiða og keyra þær af fullum krafti. Samstarfið við þau Júlí og Dísu var í alla staði virkilega ánægjulegt og þau útfærðu hugmyndina okkar á einkar faglegan og skemmtilegan hátt,“ segir Sveindís Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Sahara.

Hnjúkamói 16 í Þorlákshöfn en þar hafa nú selst 18 íbúðir af 22, flestar eftir óhefðbundið markaðsátak.

Kastljósinu beint að lífsgæðum í Þorlákshöfn

Samhliða þessari nálgun var einnig lögð áhersla á að draga fram kosti íbúðanna og staðsetningarinnar.

„Íbúðirnar við Hnjúkamóa eru vandaðar og afhendast með hágæða innréttingum og tækjum, en jafnframt var kastljósinu beint að lífsgæðum í Þorlákshöfn. Þar er fasteignaverð lægra en á höfuðborgarsvæðinu, engin bið er eftir leikskólaplássi og öll helsta þjónusta er til staðar. Skólar og fjölbreytt afþreying eru í göngufæri og styttra er í höfuðborgina en margir gera sér grein fyrir,“ segir Jónas Páll og bætir við að nýverið hafi Hnjúkamói 14 farið í sölu.

Það verður áhugavert að sjá hvaða leiðir Stofnhús og Sahara fara í markaðssetningu þess verkefnis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Ísraelar eyðileggja trúartákn kristinna manna – Prestur segir þetta ekki í fyrsta sinn

Ísraelar eyðileggja trúartákn kristinna manna – Prestur segir þetta ekki í fyrsta sinn
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Múlaborgarmálið: Réttarhöld yfir Hannes Valle framundan

Múlaborgarmálið: Réttarhöld yfir Hannes Valle framundan
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Óttast mjög um hund sinn eftir að hafa árangurslaust reynt að endurheimta hann úr pössun – „Ég veit ekkert hvort hann sé illa haldinn“

Óttast mjög um hund sinn eftir að hafa árangurslaust reynt að endurheimta hann úr pössun – „Ég veit ekkert hvort hann sé illa haldinn“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Móðir 14 ára stúlku sem arabískir menn eru sagðir hafa táldregið tjáir sig – Áhyggjufull þegar hún náði ekki sambandi við dóttur sína

Móðir 14 ára stúlku sem arabískir menn eru sagðir hafa táldregið tjáir sig – Áhyggjufull þegar hún náði ekki sambandi við dóttur sína
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Skólahreysti eykur áherslu á mataræði í samstarfi við Krónuna

Skólahreysti eykur áherslu á mataræði í samstarfi við Krónuna
Fréttir
Í gær

Efling hvetur til upptöku leigubremsu – Húsaleiga hækkað mun meira en víðast hvar í Evrópu

Efling hvetur til upptöku leigubremsu – Húsaleiga hækkað mun meira en víðast hvar í Evrópu
Fréttir
Í gær

Dagur B. segir miðborgina hafa gengið í endurnýjun lífdaga – Sjáðu fjölda „fyrir og eftir“ mynda

Dagur B. segir miðborgina hafa gengið í endurnýjun lífdaga – Sjáðu fjölda „fyrir og eftir“ mynda