fbpx
Miðvikudagur 22.apríl 2026
Fréttir

Smokkar rjúka upp í verði vegna Íransstríðsins – „Nokkrir smokkar hefðu getað komið í veg fyrir þetta stríð“

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 13:30

Flestir smokkar eru framleiddir í Malasíu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stærsti smokkaframleiðandi heims mun þurfa að hækka verð umtalsvert út af stríðinu í Íran. Efni unnin úr olíu eru notuð í smokka.

Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá þessu.

Goh Miah Kiat, forstjóri smokkaframleiðandans Karex, segir að stríðið í Íran valdi því að fyrirtækið þurfi að hækka verð um allt að 30 prósent. Jafn vel meira ef stríðið dregst á langinn.

Karex, sem er malasískt fyrirtæki, er stærsti smokkaframleiðandi heims og framleiðir meira en fimm milljarða smokka á hverju ári. Framleiðir fyrirtækið meðal annars smokka fyrir tegundir á borð við Durex og Trojan en einnig fyrir opinberar stofnanir, svo sem heilbrigðiskerfið NHS í Bretlandi.

Eins og flestir vita hefur stríð Bandaríkjanna og Ísraels í Íran valdið gríðarlegum truflunum og verðhækkunum á olíu á heimsvísu. Íranir hafa tögl og hagldir á Hormússundi þar sem 20 prósent af olíu heimsins fara venjulega óhindrað um.

Goh þarf að hækka verðið á smokkunum. skjáskot/Youtube

Olían úr Persaflóa fer að mestu leyti til Asíu og knýr áfram iðnaðarframleiðsluna þar. Karex er eitt af þeim fyrirtækjum sem reiðir sig á bæði óhindraðar skipasiglingar og efni unnin úr olíu, svo sem ammoníak til að varðveita latex og sílikonsleipiefni.

Goh segir að eftirspurnin eftir smokkum hafi vaxið um þriðjung á þessu ári vegna óvissunnar í heimsmálum. Fólk hlaupi ekki til og stofni fjölskyldur við þessar aðstæður.

„Á slæmum tímum er þörfin fyrir smokka meiri af því að fólk er í óvissu með framtíð sína, það veit ekki hvort það verður með atvinnu á næsta ári,“ segir Goh. „Ef þú eignast barn núna þá er það auka munnur til að fæða.“

Netverjar hafa gert grín að þessum fréttum þó óskemmtilegar séu. „Nokkrir smokkar hefðu getað komið í veg fyrir þetta stríð,“ segir einn í athugasemdum á samfélagsmiðlum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Vörubíll valt á Þorlákshafnarvegi

Vörubíll valt á Þorlákshafnarvegi
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Hvetur borgarfulltrúa til að bjarga Foreldrahúsi

Hvetur borgarfulltrúa til að bjarga Foreldrahúsi
Fréttir
Í gær

Björgun Jóns Péturs í gær rataði í dagbók lögreglunnar – „Vorum orðnir kaldari en mig óraði fyrir“

Björgun Jóns Péturs í gær rataði í dagbók lögreglunnar – „Vorum orðnir kaldari en mig óraði fyrir“
Fréttir
Í gær

Fagna 12 mánaða börnum í leikskólum Kópavogs

Fagna 12 mánaða börnum í leikskólum Kópavogs