fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
Fréttir

„Hér er Ríkislögreglustjóri að ljúga mjög alvarlegum sökum upp á almenna borgara!“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 31. janúar 2023 22:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sema Erla Serdaraktivisti og stofnandi Solaris – hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi – segir ríkislögreglustjóra hafa logið að Umboðsmanni Alþingis.

Frá því var greint í dag að Umboðsmaður Alþingis hafi lokið athugun sem gerð var á embætti ríkislögreglustjóra eftir að hælisleitanda um alþjóðlega vernd hafi verið vísað úr landi í nóvember.

Í bréfi sínu til umboðsmanns sagði Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, að stoðdeild lögreglu hafi gert ráð fyrir að flytja Hussein Hussein til Keflavíkur í bíl sem væri útbúinn fyrir fólk í hjólastól. Aðstæður hafi þó breyst vegna mótmælenda og hafi lögregla ekki geta tryggt öryggi á vettvangi vegna þeirra.

Sema Erla segir að um lygar sé að ræða í langri færslu á Facebook sem birtist rétt í þessu.

„Ríkislögreglustjóri lýgur opinberlega upp á almenning!,“ skrifar Sema Erla.

Lýgur alvarlegum sökum upp á almenna borgara

Hún segir að ríkislögreglustjóri kenni mótmælendum um „ómannúðlega meðferð“ á Hussein og hversu illa var staðið að brottvísuninni.

„Ríkislögreglustjóri segir að ekki hafi verið hægt að „tryggja öryggi viðkomandi vegna mótmæla, bæði í búsetuúrræði og á hóteli“ sem Hussein og fjölskylda voru flutt á eftir að hafa verið frelsissvipt af lögreglu og fjarlægð af heimili sínu og þá sérstaklega vegna „einstaklinga sem hugðust jafnvel koma i veg fyrir brottflutninginn.“

Hér er Ríkislögreglustjóri að ljúga mjög alvarlegum sökum upp á almenna borgara!“

Sema Erla segir að hún hafi verið ein af þeim sem leitaði fjölskyldu Husseins uppi eftir að fjölskyldan hafi verið frelsissvipt, færð af heimili sínu og sett í felur í þeim tilgangi að varpa ljósi á mannréttindabrot sem væru að eiga sér stað „í skjóli nætur“.

„Við fundum fjölskylduna á hóteli í Hafnarfirði og tókum okkur stöðu fyrir utan hótelið. „Við“ voru ca. sex einstaklingar, plús fréttamaður og upptökumaður frá RÚV. Fjölskyldan var á þriðju eða fjórðu hæð á hótelinu og lögregla sýnileg um allt hótelið.

Ég stóð fyrir utan hótelið og sendi út í beinni útsendingu á Instagram það sem var að eiga sér stað. Aðrir tóku mest allt upp. Ég tók einnig myndir sem fóru í mikla dreifingu í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Það er því allt til á filmu sem átti sér stað.

Það er auðvitað hlægilegt að Ríkislögreglustjóri skulu halda því fram að lögreglan, sem taldi á tímabili fleiri en 20 lögregluþjóna, hafi ekki getað „tryggt öryggi“ Hussein og fjölskyldu fyrir mótmælendum.“

Neitar að sitja undir þessum ásökunum og fer fram á afsökunarbeiðni

Sema Erla segir að fjölskyldunni hafi allan tímann stafað mikið meiri ógn af lögreglunni heldur en af þeim sem væru mætt á svæðið til að sýna fjölskyldunni stuðning.

„Það stóð aldrei til að reyna að koma í veg fyrir brottvísunina og það var ALDREI reynt að hindra störf lögreglu. Við vitum það alveg að við hefðum öll verið handtekin ef svo hefði verið.

Ég neita að sitja þegjandi undir ásökun frá Ríkislögreglustjóra um að eiga sök á illri meðferð lögreglunnar og stjórnvalda á fötluðum flóttamanni og ég furða mig mjög á þessari ósvífni yfirvalda að ljúga upp á samfélagsþegna!“

Telur Sema Erla að skýringar ríkislögreglustjóra séu til þess fallnar að þagga niður gagnrýni á störf lögreglunnar enda hafi Umboðsmaður Alþingis ákveðið að hætta skoðun málsins vegna svara ríkislögreglustjóra. Ekki hafi þeim sem mættu til að styðja fjölskylduna verið gefinn kostur á að svara fyrir sig.

„Í sama bréfi segir Ríkislögreglustjóri sjálfur að þarna hafi lögreglan verið að brottvísa einstaklingi í hjólastól í fyrsta skipti og að skoða þurfi verkferla í kringum það. Samt getur embættið ekki viðurkennt að þau komu illa fram við Hussein og brutu á honum. Í staðinn er logið upp á almenna borgara.

Ég krefst þess að Ríkislögreglustjóri dragi þessi ósannindi til baka og biðjist afsökunar á að ljúga upp á almenna borgara!

Þessu máli er ekki lokið!“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Yfirlýsing Fóðurblöndunnar um vinnuslysið í morgun – Þrír slösuðust, þar af einn alvarlega

Yfirlýsing Fóðurblöndunnar um vinnuslysið í morgun – Þrír slösuðust, þar af einn alvarlega
Fréttir
Í gær

Fær innan við 400 þúsund á mánuði eftir skatt – „Horfðu í augun á mér og segðu mér að ég sé vandamálið“

Fær innan við 400 þúsund á mánuði eftir skatt – „Horfðu í augun á mér og segðu mér að ég sé vandamálið“
Fréttir
Í gær

Heilahimnubólga breiðist út á Englandi: „Veikindin tóku hana frá okkur á 12 tímum“

Heilahimnubólga breiðist út á Englandi: „Veikindin tóku hana frá okkur á 12 tímum“
Fréttir
Í gær

Magnús Hlynur kominn á RÚV

Magnús Hlynur kominn á RÚV
Fréttir
Í gær

Ragnar Bragason ósáttur við Hlyn lögreglumann og segir ráðherra éta upp hugmyndafræðina eftir hann – Rangfærslur og vanvirðing

Ragnar Bragason ósáttur við Hlyn lögreglumann og segir ráðherra éta upp hugmyndafræðina eftir hann – Rangfærslur og vanvirðing
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vésteinn renndi yfir kortayfirlitið og fékk áfall – „Færslur, sem fengu hárin til að rísa“

Vésteinn renndi yfir kortayfirlitið og fékk áfall – „Færslur, sem fengu hárin til að rísa“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sauð upp úr í Krónunni þegar öryggisvörður reyndi að stöðva samlokuþjóf

Sauð upp úr í Krónunni þegar öryggisvörður reyndi að stöðva samlokuþjóf
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bak við tjöldin hjá Bergrúnu Írisi

Bak við tjöldin hjá Bergrúnu Írisi