fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Í vímu á 162 km hraða í Ártúnsbrekku

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 18. júlí 2022 05:39

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á öðrum tímanum í nótt var ökumaður handtekinn eftir að hraði bifreiðarinnar, sem hann ók, mældist 162 km/klst í Ártúnsbrekku en þar er leyfður hámarkshraði 80 km/klst. Ökumaðurinn er grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.

Sex ökumenn til viðbótar voru handteknir í gærkvöldi og nótt grunaðir um að vera undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Einn þeirra reyndist vera sviptur ökuréttindum og annar ekki með gild ökuréttindi. Sá þriðji reyndist vera sviptur ökuréttindum og ók of hratt en hraði bifreiðar hans mældist 102 km/klst þar sem leyfður hámarkshraði er 60 km/klst.

Einn ökumaður var kærður fyrir að nota ekki öryggisbelti við akstur og fyrir að aka bifreið sem var með fjögur nagladekk. Auk þess hafði bifreiðin ekki verið færð til endurskoðunar. Skráningarnúmeri voru því tekin af henni.

Annar ökumaður var kærður fyrir að aka bifreið sem var með fjögur nagladekk. Auk þess er ökumaðurinn ekki með gild ökuréttindi.

Einn ökumaður var kærður fyrir of hraðan akstur á Kringlumýrarbraut en hraði bifreiðarinnar, sem hann ók, mældist 115 km/klst en leyfður hámarkshraði er 80 km/klst.

Í Garðabæ var tilkynnt um innbrot og þjófnað úr geymslum.

Í Kópavogi var tilkynnt um eld í ruslageymslu fjölbýlishúss á ellefta tímanum. Talsverður reykur var á vettvangi þegar viðbragðsaðilar komu. Eldurinn var í ruslatunnu. Minniháttar skemmdir hlutust af.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna