fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Fréttir

Pútín-ráðgátan verður sífellt stærri

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 10. október 2022 05:51

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á föstudaginn fagnaði Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, sjötugsafmæli sínu. En sagan um forsetann verður sífellt dularfyllri. Það er erfitt að festa hendur á Pútín hvað varðar það sem hann gerir og hvað hann vill.

Jakob Tolstrup, sem sérhæfir sig í rannsóknum á rússneskum utanríkismálum og starfar hjá Árósaháskóla, sagði í samtali við Ekstra Bladet að erfitt sé að lesa í Pútín og stöðu hans.

„Vandinn er að honum hefur mistekist á mörgum sviðum. Efnahagur landsins er slæmur og Rússar hafa beðið fjölda ósigra á vígvellinum. Skyndilega gengur hann ekki lengur á vatni og hann virðist sífellt örvæntingarfyllri,“ sagði Tolstrup.

Hann sagði að þetta ætti í raun og veru að þýða að Pútín sé viðkvæmari en áður en hins vegar sé ekki vitað hvort svo sé.

Hann benti á að kannanir meðal rússnesks almennings hafi sýnt að 30-40% styðji Pútín heilshugar, um 20% styðji hann hóflega og um 30% séu á móti honum. Ekki sé vitað hvaða áhrif stríðið í Úkraínu hafi á fólk og hvort það hefur orðið til þess að hreyfing hafi komist á þau 20% sem teljist hóflegir stuðningsmenn hans.

„Pútín hefur alltaf haldið völdum með því að hafa stuðning almennings og stuðningur almennings virkar eins og nokkurs konar skothelt vesti gegn gagnrýni í einræðisríki. En nú hækkar matvælaverð, efnahagskreppa er skollin á og herkvaðning þar sem vinur og ættingjar fólks eru kallaðir í herinn. Þetta hlýtur að hafa áhrif á vinsældir hans en við vitum það ekki með vissu,“ sagði hann.

Hann benti einnig á að það sé afgerandi fyrir Pútin að njóta stuðnings þeirra sem eru í innsta hringnum í Kreml. Erfitt sé að lesa í stöðuna á þeim bæ en líklega fari stuðningur við hann þverrandi í þeim hópi.

„Líkurnar á valdaráni fara vaxandi en ef ég væri að íhuga valdarán þá myndi ég bíða og sjá hvort málin haldi áfram að þróast á verri veg í Úkraínu. Pútín hefur lagt allt að veði og hann er undir miklum þrýstingi ef Úkraínumönnum tekst áfram að gera Rússum óleik,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu
Fréttir
Í gær

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Í gær

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“
Fréttir
Í gær

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni