Tryggvi Ingólfsson, fyrrverandi verktaki á Hvolsvelli, lést mánudaginn 5. júlí, 71 árs að aldri. Morgunblaðið greinir frá.
Tryggvi var fæddur í Neðri-Dal undir Vestur-Eyjafjöllum 16. mars 1950, sonur hjónanna Ingólfs Ingvarssonar og Þorbjargar Eggertsdóttur. Hann stofnaði verktakafyrirtækið Jón og Tryggvi ehf. með Jóni Óskarssyni árið 1980 og var það í rekstri í rúmlega aldarfjórðung.
„Tryggvi var virkur í félagsmálum, svo sem á vettvangi Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi. Var í hreppsnefnd Hvolhrepps 1986-1998 og gegndi jafnhliða því ýmsum trúnaðarstörfum í héraði,“ segir í frétt Morgunblaðsins.
Vorið 2006 féll Tryggvi af hestbaki og hlaut við það mænuskaða og lamaðist fyrir neðan háls. Dvaldist hann eftir það á hjúkrunarheimilinu Kirkjuhvoli á Hvolsvelli.
Síðustu árin mætti Tryggvi miklu andstreymi á hjúkrunarheimilinu en starfsfólk þar taldi hann erfiðan í umgengni og vildi fá hann burtu af heimilinu. Árið 2018 þurfti Tryggvi að dúsa mánuðum saman í litlu herbergi á Landspítalanum í Fossvogi eftir að hafa gengist undir aðgerð þar. Ástæðan var sú að starfsfólkið á Kirkjuhvoli, eða hluti þess, vildi ekki fá hann til baka. DV fjallaði um málið og segir meðal annars í fréttinni:
„Á meðan hann var fjarverandi skrifaði starfsfólk heimilisins undir undirskriftalista þess efnis að það myndi ganga út ef Tryggvi sneri aftur á Kirkjuhvol. Hefur fjölskylda Tryggva fengið mismunandi skýringar á þessum aðgerðum starfsfólks, allt frá því að Tryggvi væri erfiður í samskiptum og ylli miklu álagi á starfsfólk, yfir í að ekki væri hægt að tryggja öryggi hans á Kirkjuhvoli. Hjúkrunarheimilið gat þó í 11 ár veitt honum þjónustu án þess að nokkurn tímann hafi verið rætt að öryggi hans væri ógnað með veru hans þar.
Í stað þess að dvelja í rúmlega 500 metra fjarlægð frá eiginkonu sinni þá aðskilja rúmlega 100 kílómetrar þau. Tryggvi dvelur einn og yfirgefinn á lungnadeild Landspítalans í Fossvoginum og getur ekki hitt ástvini sína eins oft og hann langar. Hann segist upplifa sig sem einskis nýtan pappakassa sem er hent í geymslu. Fjölskyldumeðlimir telja að um gróft mannréttindabrot sé að ræða en engin lausn virðist í sjónmáli.“
Tryggvi fékk að lokum inni á hjúkrunardeildinni Ljósheimum á Selfossi og dvaldist þar síðustu ævimisserin. Áður hafði hann búið í 11 ár í Kirkjuhvoli.