fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Tryggvi er miður sín: „Ég er heimilislaus í fyrsta skipti á ævinni“ – Upplifir sig sem einskis nýtan pappakassa

Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
Föstudaginn 16. nóvember 2018 12:30

Tryggvi Ingólfsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tryggvi Ingólfsson, sem er lamaður fyrir neðan háls, hefur í átta mánuði þurft að dúsa í litlu herbergi á Landspítalanum í Fossvogi. Áður hafði hann dvalið við gott atlæti á dvalar- og hjúkrunarheimilinu á Kirkjuhvoli á Hvolsvelli í ellefu ár. Í byrjun árs þurfti Tryggvi að fara í aðgerð á Landspítalanum. Á meðan hann var fjarverandi skrifaði starfsfólk heimilisins undir undirskriftalista þess efnis að það myndi ganga út ef Tryggvi sneri aftur á Kirkjuhvol. Hefur fjölskylda Tryggva fengið mismunandi skýringar á þessum aðgerðum starfsfólks, allt frá því að Tryggvi væri erfiður í samskiptum og ylli miklu álagi á starfsfólk, yfir í að ekki væri hægt að tryggja öryggi hans á Kirkjuhvoli. Hjúkrunarheimilið gat þó í 11 ár veitt honum þjónustu án þess að nokkurn tímann hafi verið rætt að öryggi hans væri ógnað með veru hans þar.

Í stað þess að dvelja í rúmlega 500 metra fjarlægð frá eiginkonu sinni þá aðskilja rúmlega 100 kílómetrar þau. Tryggvi dvelur einn og yfirgefinn á lungnadeild Landspítalans í Fossvoginum og getur ekki hitt ástvini sína eins oft og hann langar. Hann segist upplifa sig sem einskis nýtan pappakassa sem er hent í geymslu. Fjölskyldumeðlimir telja að um gróft mannréttindabrot sé að ræða en engin lausn virðist í sjónmáli. Kostnaðurinn við dvöl Tryggva í Fossvoginum er ærinn eða 350 þúsund krónur á dag.

Heppinn að lifa slysið af

Á vordegi einum fyrir tólf árum breyttist líf Tryggva Ingólfssonar til frambúðar. Hann var í útreiðartúr með fjölskyldu sinni þegar hestur hans hrasaði. Tryggvi féll af baki og slasaðist alvarlega. „Ég féll af baki og heyrði þegar hálsliðurinn brotnaði. Eftir það er hins vegar allt svart,“ sagði Tryggvi í viðtali við Morgunblaðið fyrir áratug. Afleiðingar slyssins voru þær að Tryggvi lamaðist fyrir neðan háls, þar með talin öndunarfæri, og hefur þurft aðstoð við allar athafnir daglegs lífs síðan. Hann mátti teljast afar heppinn að komast lífs af því þegar slysið átti sér stað hafði enginn á Íslandi lifað af svo alvarlegan mænuskaða.

Fyrst eftir slysið dvaldi Tryggvi á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi og síðan fór hann í endurhæfingu á Grensás í tíu mánuði. Í kjölfarið fékk hann pláss á Kirkjuhvoli, nálægt heimili hans, en í áðurnefndu viðtali við Morgunblaðið dásamar Tryggvi þjónustuna og sagðist njóta bestu mögulegu hjúkrunar frábærra starfsmanna.

Ástæða brottrekstrar síbreytileg

Rétt er að geta þess að fjörtíu starfsmenn starfa á Kirkjuhvoli og því var aðeins hluti starfsmannanna ósáttur við Tryggva. Ástæðan fyrir þessum viðbrögðum starfsfólks var sögð sú að Tryggvi væri erfiður í samskiptum. Seinna var því haldið fram að mannekla á Kirkjuhvoli væri ástæðan fyrir því að hann gæti ekki snúið til baka, en síðasta ástæðan sem var gefin var sú, sem fyrr segir, að ekki væri hægt að trygga öryggi hans. Í kjölfarið sagði sveitarfélagið einhliða upp samningi við ríkið vegna umönnunar Tryggva.

Í átta mánuði hefur líf Tryggva verið í biðstöðu og unir hann hag sínum illa. Hann þakkar starfsfólki Landspítalans sérstaklega fyrir að reyna gera allt í sínu valdi til að gera vist hans þar eins þægilega og hægt er. Fjölmiðlar fjölluðu um málið fyrir sjö mánuðum en engin lausn hefur enn fundist.

„Það hefur ekkert gerst núna í átta mánuði. Ég hef verið heimilislaus í átta mánuði, í fyrsta skipti á ævinni,“ segir Tryggvi, sem kann því afar illa að dveljast fjarri eiginkonu sinni og fimm börnum. „Það er enginn sem tekur ábyrgð á þessu máli og það er aldrei neinn sem ræðir við mig að fyrra bragði. Börnin mín hafa verið að krefja yfirvöld um lausn á málinu og það er í eina skiptið sem eitthvað fer á hreyfingu,“ segir Tryggvi.

Viðbrögð starfsfólks komu á óvart

Hann segir að viðbrögð starfsfólks á Kirkjuhvoli hafi komið honum í opna skjöldu. „Mér leið mjög vel á Kirkjuhvoli og var ánægður með þá umönnun sem ég fékk. Það kom mér mjög á óvart þegar ég heyrði að starfsfólk vildi ekki fá mig aftur,“ segir Tryggvi. Hann vísar því alfarið á bug að hann hafi verið erfiður í samskiptum.

DV hefur ítrekað reynt að fá svör frá sveitarfélaginu vegna málsins en án árangurs. Þau svör sem þó berast eru á þann veg að ekki verði rætt um einstök mál, eða vísað á aðra sem einnig neita að tjá sig um málið. Þá óskaði DV eftir afriti af samningi sveitarfélagsins, Rangárþings eystra, við velferðarráðuneytið um umönnun Tryggva en bárust þá þau svör að slíkur samningur væri ekki tiltækur hjá sveitarfélaginu né uppsögn hans.

DV mun fjalla ítarlega um málið á næstunni á DV.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“
Fréttir
Í gær

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”