fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fréttir

Aftur hægt að komast í spinning í World Class

Erla Dóra Magnúsdóttir
Mánudaginn 19. október 2020 13:51

Frá World Class Laugum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Líkamsræktarstöðin World Class hefur tilkynnt að starfsemi muni hefjast í stöðvum aftur frá og með deginum í dag en um helgina voru tilkynntar breytingar á reglum um sóttvarnartakmarkanir sem fólu í sér að heilsurækt mætti fara af stað aftur með skipulagða hópatíma ef einstaklingar eru skráðir í tíma og reglum um fjarlægð og þess háttar væri gætt. Hins vegar er óheimilt að vera með æfingar í skipulögðu íþróttastarfi sem og æskulýðs- og tómstundastarf barna.

World class hefur sett 19 manna hámark í alla tíma, gætt að tveggja metra reglu, búnaður sótthreinsaður milli tíma og hver tími hefur sérinngang og salernisaðstöðu.

Eins verður lokað fyrir búningsklefa og sturtu.

Á upplýsingafundi almannavarna í dag sagði Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir, að mikið af smitum í síðari bylgju COVID-19 mætti rekja til líkamsræktar og íþróttaiðkunar og hefði hann helst viljað skrúfa fyrir slíka starfsemi áfram.

Stjórnvöld hafi þó orðað reglurnar með þeim hætti að heilsurækt mætti fara að stað aftur með skipulagða tíma sem skráð er í. Hins vegar ætlaði Þórólfur að ræða um þetta orðalag við stjórnvöld og skýra betur út reglurnar en margir staðir sem bjóða upp á heilsurækt eru nú óvissir um hvert inntak reglnanna sé og hvaða starfsemi falli innan þeirra og hvaða starfsemi falli utan.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eiríkur fékk ábendingu um hver sendi nafnlausa bréfið um afa hans – „Aldrei djók eða fyndið“

Eiríkur fékk ábendingu um hver sendi nafnlausa bréfið um afa hans – „Aldrei djók eða fyndið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Benedikt á inni greiðslur hjá Dönsku konunni – „Því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk fresti laununum sínum“

Benedikt á inni greiðslur hjá Dönsku konunni – „Því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk fresti laununum sínum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli