fbpx
Miðvikudagur 22.apríl 2026
Fréttir

Mogginn gefur borginni á baukinn: Það sem áður tók 20 mínútur tekur nú 30 mínútur

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 29. ágúst 2019 08:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ferðatími í borginni hefur á nokkrum árum lengst um hátt í 50%. Það þýðir að nú tekur hálftíma að fara vegalengd, sem áður var farin á tuttugu mínútum,“ segir í leiðara Morgunblaðsins í dag en þar, eins og stundum áður, er fjallað um umferðina í höfuðborginni.

Nú þegar skólarnir eru byrjaðir og hjól atvinnulífsins farin að snúast á fullu eftir sumarleyfi þyngist umferðin á morgnana og síðdegis. Leiðarahöfundur Morgunblaðsins segir að umferðin í Reykjavík hafi þyngst ár frá ári og nú sé staðan þannig að þeir sem komast hjá því reyna helst ekki að vera á ferðinni.

„Yfir sumartímann léttist reyndar umferðin verulega og helgast það einkum af sumarfríum frá vinnu og skóla. Nú þegar skólar hafa verið settir blasir hins vegar við það sem koma skal í vetur og lofar ekki góðu,“ segir í leiðaranum og bent á það að lengi hafi verið vitað hvar verstu umferðarhnútana er að finna. Samt sem áður hafi ekkert verið gert í málinu.

„Þess í stað hefur verið veðjað á að setja meiri peninga í strætisvagnakerfið og fólk verið hvatt til að hjóla. Þessar aðgerðir hafa engu skilað, en á meðan hefur ástandið í umferðinni versnað jafnt og þétt. Stofnæðir þola umferð upp að ákveðnu marki. Um leið og því er náð versnar ástandið mjög snarlega þótt ekki muni nema nokkrum ökutækjum. Ástandið má laga með ýmsum hætti og það getur kostað peninga.“

Leiðarahöfundur bendir á að aðgerðir til að bæta ástandið þurfi ekki endilega að vera dýrar. Þannig væri hægt að samræma umferðarljós til að umferðin gengi betur fyrir sig. Þessi hugmynd hafi áður verið nefnd en ekkert gerst.

„Tafirnar í umferðinni eru ekki léttvægar. Þær kosta beinlínis peninga. Er þá ekki aðeins horft til brennslu bíla í lausagangi á eldsneyti, heldur aukins kostnaðar fyrir fyrirtæki og áhrifa á framleiðni. Tafirnar skerða einnig lífsgæði fólks. Íbúar Reykjavíkur nutu eitt sinn þeirra lífsgæða umfram íbúa milljónaborga að þurfa ekki að sitja fastir í bílum lon og don. Þeir, sem hrífast af stórborgum, gera það sjaldnast vegna umferðarhnútanna. Í mörgum þeirra er vandinn ekki síst sá að kjarni þeirra var skipulagður löngu fyrir nútímasamgöngur og því hefur verið óhjákvæmilegt að grípa til róttækra aðgerða til að draga úr umferð.“

Leiðarahöfundur segir að þetta eigi ekki við í Reykjavík. Meirihlutinn í borginni taki þátt í glórulausu stríði við einkabílinn – þannig hafi þetta ástand orðið til. „Bílstjórar mega búa sig undir að sitja löngum stundum fastir í umferð í vetur. Það gæti verið ráð að birgja sig upp af hljóðbókum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Þurfti að fara í hart til að fá bætur vegna innbrots – Tryggingafélagið vildi ekki samþykkja niðurstöðu lögreglu

Þurfti að fara í hart til að fá bætur vegna innbrots – Tryggingafélagið vildi ekki samþykkja niðurstöðu lögreglu
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Zelensky sagður hafa reitt dygga bandamenn til reiði – „Þetta stenst einfaldlega ekki“

Zelensky sagður hafa reitt dygga bandamenn til reiði – „Þetta stenst einfaldlega ekki“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Óttast mjög um hund sinn eftir að hafa árangurslaust reynt að endurheimta hann úr pössun – „Ég veit ekkert hvort hann sé illa haldinn“

Óttast mjög um hund sinn eftir að hafa árangurslaust reynt að endurheimta hann úr pössun – „Ég veit ekkert hvort hann sé illa haldinn“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Viðskiptaráð vill afnema hlutdeildarlán – „Grafa undan yfirlýstu markmiði lánanna“

Viðskiptaráð vill afnema hlutdeildarlán – „Grafa undan yfirlýstu markmiði lánanna“
Fréttir
Í gær

Sólveig bendir á sturlaða staðreynd um rausnarlega launahækkun Höllu – „Siðferðislega rangt og það grefur undan trausti og trúverðugleika“

Sólveig bendir á sturlaða staðreynd um rausnarlega launahækkun Höllu – „Siðferðislega rangt og það grefur undan trausti og trúverðugleika“
Fréttir
Í gær

KAPP og Laxey undirrituðu samning í Barcelona

KAPP og Laxey undirrituðu samning í Barcelona