fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Segir forsætisráðherra hunsa íbúa – „Mynduð þið sætta ykkur við þögnina?“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 15:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bæjarstjórn Grindavíkur boðar til opins íbúafundar í dag, miðvikudaginn 22. apríl kl. 16:30, í Gjánni, „einum mikilvægasta íbúafundi í sögu bæjarins. Þar á að ræða framtíð samfélags sem hefur verið sett á hliðina, samfélags sem hefur lifað í óvissu mánuðum saman og beðið eftir svörum sem virðast ekki koma,“

segir Dagmar Valsdóttir  eigandi Grindavík Guesthouse & Kvika Travel ehf. í grein sinni á Vísi.

Segir hún það óásættanlegt að forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, sjái sér ekki fært að mæta. „Þetta er ekki formsatriði. Þetta er ekki valkvætt. Þetta er próf á forgangsröðun.“

Segir Dagmar að fyrir Alþingiskosningar voru gefin loforð um að hlusta á fólk, vera í samtali og standa með þeim sem þurfa mest á því að halda. Nú reyni á þau orð.

„Og því miður blasir við mynd sem vekur upp alvarlegar spurningar um hvort Grindavík skipti raunverulega máli í huga stjórnvalda. Á meðan bíða íbúar. Bæjarfélag sem hefur gengið í gegnum náttúruhamfarir, rýmingu og djúpa óvissu situr eftir án svara. Án samtals. Án þess að upplifa að það sé hlustað.“

Dagmar og fjölskylda hennar.

 

Segir Dagmar, Járngerði sem er félag íbúa í Grindavík, hafa reynt ítrekað í meira en tvo mánuði að ná sambandi við forsætisráðherra, bæði í gegnum síma og tölvupóst. Engin svör hafi borist.

„Hvað þarf að gerast til að samfélag á Íslandi fái raunverulega athygli stjórnvalda? Hversu langt þurfa íbúar að ganga áður en rödd þeirra er tekin alvarlega? Þetta snýst ekki um kurteisi eða dagskrárlið. Þetta snýst um virðingu. Virðingu fyrir fólki sem hefur misst öryggi sitt, heimili sitt og framtíðarsýn sína tímabundið eða jafnvel varanlega. Ef stjórnvöld mæta ekki þegar mest á reynir, hvenær mæta þau þá?“

Dagmar biðlar til þeirra sem fylgjast með utan Grindavíkur að setja sig í spor íbúanna.

„Ef þetta væri ykkar samfélag, ykkar fjölskyldur, ykkar framtíð mynduð þið sætta ykkur við þögnina?“

Fundinum verður streymt, en þeir sem hafa tök á hvattir til að mæta á staðinn. „Það skiptir máli fyrir umræðuna að fá fólk í salinn og að þingmenn heyri raddir Grindvíkinga beint.“

Í auglýsingu um fundinn sem birt var kl. 9.25 þriðjudagsmorgun segir að Sigurður Ingi Jóhannsson Framsóknarflokki, Vilhjálmur Árnason Sjálfstæðisflokki og Sandra Sigurðardóttir Viðreisn (með fyrirvara um þinghald) hafi staðfest komu sína.
Enginn þingmaður frá Flokki fólksins, Miðflokknum og Samfylkingunni hefur boðað komu sína. Forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, hefur tilkynnt að hún muni ekki mæta á fundinn en hefur boðið að senda ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu í sinn stað. Ekki hefur borist formlegt svar frá Fasteignafélaginu Þórkötlu varðandi mætingu á fundinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“
Fréttir
Í gær

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þriggja áratuga ráðgáta um svindlið á Helga Ólafssyni leyst – „Þetta hlaut alltaf að komast upp“

Þriggja áratuga ráðgáta um svindlið á Helga Ólafssyni leyst – „Þetta hlaut alltaf að komast upp“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu