fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Tvær konur dæmdar fyrir að hrækja upp í munn lögreglumanna

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 15:30

Konunum var laus hrákinn. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tvær konur, önnur erlend en hin íslensk, hafa verið dæmdar í tveimur aðskildum málum fyrir að hrækja upp í munn lögreglumanna. Báðar hlutu þær skilorðsbundna fangelsisdóma.

Hin íslenska kona var dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa í tvígang hrækt á lögreglumenn. Í fyrra skiptið þann 29. apríl árið 2024 aftan við lögreglustöðina við Hverfisgötu. Þá hrækti hún á vesti og í andlit lögreglumanns og fékk hann hráka í munn sinn.

Seinna tilfellið var þann 4. maí árið 2025 við brottfararsal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Hrækti konan þá í andlit lögreglumanns og fékk hann hrákann í hægra augað og við munnvik.

Játaði hún brot sín og hlaut 60 daga skilorðsbundinn dóm til tveggja ára. Auk þess var henni gert að greiða skipuðum lögmanni sínum rúmar 200 þúsund krónur.

Í sama dómstól var erlend kona dæmd fyrir hráka. Það er kvöldið 23. mars árið 2024 þegar hún hrækti í andlit lögreglumanns í aftursæti lögreglubifreiðar sem ekið var um Hverfisgötu. Fór hrákinn í munn lögreglumannsins og hægra auga hans.

Játaði hún einnig brot sitt og hlaut 30 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm til tveggja ára. Var henni gert að greiða rúmar 200 þúsund krónur í málsvarnarlaun og 50 þúsund í annan sakarkostnað.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“
Fréttir
Í gær

Fannst látinn við Háafoss

Fannst látinn við Háafoss
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Í gær

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar