fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Sunna saklaus eða föst í lygavef?

Mál Sunnu Elviru heldur þjóðinni í heljargreipum – Sviðin jörð: Flutningurinn kostaði 4 milljónir – Greiðsla fyrir íbúð finnst ekki

Björn Þorfinnsson
Föstudaginn 16. febrúar 2018 08:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að fullyrða að þjóðin hafi fylgst agndofa með máli Sunnu Elviru Þorkelsdóttur sem sífellt tekur nýja stefnu. Sunna Elvira liggur lömuð á sjúkrahúsi í Malaga eftir að hafa að hafa fallið milli hæða á heimili sínu í spænsku borginni. Hefur hún biðlað til íslenskra yfirvalda um aðstoð við að komast á betra sjúkrahús sem getur veitt henni nauðsynlega meðferð við meiðslum sínum. Spænsk lögregluyfirvöld hafa þó virt þær óskir að vettugi og segir Sunna Elvira að henni sé í raun haldið í gíslingu þar ytra. Það sé gert til þess að setja pressu á hana um að veita upplýsingar um umfangsmikið fíkniefnamál, kennt við Skáksamband Íslands, sem eiginmaður Sunnu Elviru, Sigurður Kristinsson, er flæktur inn í. Sunna Elvira þvertekur fyrir að hafa haft nokkra vitneskju um málið. Margt við frásögn Sunnu Elviru stenst ekki nána skoðun.

Svikaslóð á Íslandi

Inni í húsi Sunnu og Sigurðar í bænum Marbella á Suður-Spáni. Myndirnar voru á Airbnb-síðu sem var í nafni Sunnu Elviru, búið er að eyða síðunni.

Íbúðin á Spáni Inni í húsi Sunnu og Sigurðar í bænum Marbella á Suður-Spáni. Myndirnar voru á Airbnb-síðu sem var í nafni Sunnu Elviru, búið er að eyða síðunni.

Mynd: Skjáskot af Airbnb-síðu Sunnu Elviru

Í nýlegum viðtölum við aðra fjölmiðla hefur Sunna Elvira haldið því fram að ævintýraþráin ein hafi leitt hana og eiginmanninn til Spánar. „Við vildum bara prófa að búa á Spáni í einhvern tíma og sjá hvert það myndi leiða. Þannig að þegar þessi ósköp dundu yfir þá var það mikið áfall fyrir mig, af því að ég hafði ekki hugmynd um að eitthvað væri að og þetta var mjög óvænt sem átti eftir að koma á daginn,“ sagði Sunna Elvira í samtali við Fréttablaðið. Raunveruleikinn er sá að Sunna Elvira flúði til Spánar ásamt eiginmanni sínum, sem skildi eftir sig slóð svika hér á landi.

Á Íslandi rak Sigurður verktakafyrirtækið SS hús ehf., sem tekið var til gjaldþrotaskipta þann 10. janúar síðastliðinn. Í byrjun febrúar greindi Fréttablaðið frá því að grunur léki á stórfelldum undanskotum eigna og þjófnaði úr félaginu áður en til gjaldþrotsins kom. Kom fram að undanskot eigna og óútskýrðar millifærslur af reikningum félagsins hlypu á hundruðum milljónum króna. Þá er félagið einnig til rannsóknar hjá skattyfirvöldum meðal annars vegna mikilla vanskila á vörslusköttum.

Greiðsla fyrir íbúð finnst ekki

Mynd: Skjáskot af Airbnb-síðu Sunnu Elviru

Athygli vekur að Unnur Birgisdóttir, móðir Sunnu Elviru, var starfsmaður SS húsa ehf. Sá hún meðal annars að stórum hluta um bókhald félagsins. Einn umdeildur gjörningur sem skiptastjóri hefur rannsakað snýr að heimili Unnar í Kópavogi.

Þann 10. maí 2017 var þinglýst afsali af íbúð í fjölbýlishúsi við Vallakór 2b í Kópavogi. Seljandi íbúðarinnar var SS hús ehf., en fyrirtækið byggði umrætt fjölbýlishús. Kaupandi fasteignarinnar var GS Pípulagnir ehf., en það félag var stofnað af Gísla Steingrímssyni, eiginmanni Unnar og stjúpföður Sunnu Elviru. Sunna Elvira er skráð stjórnarformaður félagsins og framkvæmdastjóri en hún kvittaði undir afsalið að eigninni fyrir hönd GS Pípulagna ehf.

Unnur hefur verið úti á Spáni að hlúa að dóttur sinni undanfarna daga og vikur. Kom hún meðal annars söfnuninni fyrir sjúkraflugi Sunnu Elviru í loftið og var óþreytandi að leita styrkja á stórfyrirtækjum í því skyni.
Unnur Birgisdóttir Unnur hefur verið úti á Spáni að hlúa að dóttur sinni undanfarna daga og vikur. Kom hún meðal annars söfnuninni fyrir sjúkraflugi Sunnu Elviru í loftið og var óþreytandi að leita styrkja á stórfyrirtækjum í því skyni.

Vafi leikur á hvort greiðsla hafi borist vegna viðskiptanna og því hefur skiptastjóri SS húsa ehf., Heiðar Ásberg Atlason, lagt fram kröfu þess efnis að gerningum verði rift. Heiðar staðfestir þetta í samtali við DV en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Sagði hann að gagnaöflun væri ekki enn lokið og enn ætti eftir að taka skýrslu af ýmsum sem tengjast því, meðal annars Sunnu Elviru og móður hennar.

Í dag býr Unnur í íbúðinni ásamt eiginmanni sínum. Þá eru Sunna Elvira, Sigurður og dóttir þeirra skráð með lögheimili að Vallarkór 2b.

Neitar aðild að fíkniefnasmygli

Eins og ítrekað hefur komið fram í fjölmiðlum situr Sigurður Kristinsson í gæsluvarðhaldi hér á landi. Er hann grunaður um að hafa átt þátt í skipulagningu á umfangsmiklu fíkniefnasmygli frá Spáni til Íslands. Samkvæmt heimildum DV var um að ræða um átta kílógrömm af fíkniefnum sem send voru með DHL til Íslands og gerð upptæk í alræmdri aðgerð sérsveitar lögreglu í húsnæði Skáksambands Íslands.

Í nýlegum viðtölum hefur Sunna Elvira neitað í hvívetna að hafa nokkuð vitað um meint fíkniefnabrask eiginmannsins. Lögregluyfirvöld á Spáni eru á annarri skoðun en Sunna Elvira sætir farbanni ytra því hún er grunuð um aðild að málinu. Þannig greindi DV frá því í síðustu viku að hugsanlega hefði greiðsla sendingarinnar verið rakin til hennar.

Sunna Elvira þverneitaði þessu í viðtali við Stöð 2 rétt áður en blaðið fór í prentun. Sagði Sunna Elvira að um flökkusögu væri að ræða og hún hefði engan þátt átt í smyglinu. Þá beri kortayfirlit það með sér að eiginmaður hennar hafi ekki notað hennar greiðslukort til að greiða fyrir sendinguna.

Hún segir farbannið hafa komið á óvart en hún sé með uppáskrift frá dómara um að hún sé frjáls ferða sinna innan Spánar. Telur hún að verið sé að halda sér til að þrýsta á eiginmann hennar um að tala við lögregluna á Íslandi.

Sjúkraflugið kostar 4,1 milljón – ekki 5,5

Um leið og fréttir af ástandi Sunnu Elviru bárust til Íslands hratt móðir hennar af stað söfnun fyrir dóttur sína. Tryggingar voru ekki til staðar og því ærinn kostnaður sem lenti á fjölskyldunni. Sagði Unnur í samtali við DV á þeim tímapunkti: „Kostnaður við flutninginn heim er um 5,5 milljónir króna. Það er sjúkraflug með lækni og hjúkrunarkonu, akstur sjúkrabíla af spítala á flugvöll og flutningur á spítala heima, þýðingar á sjúkraskýrslum og fylgd foreldra. Það er ekkert annað í boði þar sem það er ekkert beint flug frá Malaga til Íslands.“ Fyrirtækið sem fjölskyldan gekk til samninga við heitir Verdana Gmbh en dótturfélag þess mun annast flutninginn. Rétt er að geta þess að tönnlast hefur verið á þessum 5,5 milljónum króna í viðtölum við aðstandendur Sunnu Elviru.

Þá hefur verið greint frá því að á tveimur dögum hafi safnast um sex milljónir króna. DV óskaði eftir upplýsingum frá talsmanni fjölskyldunnar, Jóni Kristni Snæhólm, um hvernig peningunum hafi verið ráðstafað. Samkvæmt greiðslukvittun sem barst kostaði sjúkraflugið, með öllum aukakostnaði, 4,1 milljón króna. Þegar Jón Kristinn var beðinn um upplýsingar hvernig afganginum, tæpum tveimur milljónum króna, yrði ráðstafað sagði hann að greitt yrði fyrir gistingu foreldra Sunnu á Spáni auk lögfræði- og sjúkrakostnaðar.

Slysið sveipað dulúð

Fjölmargar flökkusögur eru á kreiki um hvernig slysið, sem Sunna Elvira lenti í, átti sér stað. Um leið og slysið átti sér stað var eiginmaður hennar handtekinn en honum var síðan sleppt úr haldi lögreglu nokkrum dögum síðar. Fór hann þá beint upp í flugvél til Íslands þar sem hann var umsvifalaust handtekinn, þann 25. janúar, í tengslum við áðurnefnt fíkniefnasmygl.

DV náði sambandi við Sigurð í gegnum Facebook að morgni 23. janúar. Greindi Sigurður frá því að hann væri laus allra mála og að um slys hefði verið að ræða. Sagði hann blaðamanni orðrétt: „Ég var ekki til staðar, því miður, þegar slysið varð en yfirvöld tóku sinn tíma í að staðfesta það.“ Blaðamaður túlkaði það sem svo að hann hefði ekki verið staddur á heimili sínu en það virðist hafa verið misskilningur.

Í viðtölum við Sunnu Elviru hefur komið fram að þegar slysið átti sér stað hafi hún verið heima með eiginmanni sínum og dóttur. Á hún að hafa fallið fram af svölum á heimilinu en hún kveðst ekki muna aðdraganda þess. Hún hafi fengið höfuðhögg og atburðirnir séu í þoku. Þegar hún vaknaði eftir aðgerð þá hafi tveir lögreglumenn tjáð henni að eiginmaður hennar hefði verið handtekinn. Henni hefði brugðið mjög mikið því hún hefði vitað í hjarta sínu að hann hefði ekki átt neinn þátt í fallinu. Hann sé ekki ofbeldismaður, fallið hafi verið slys.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“