fbpx
Laugardagur 11.maí 2024
Fréttir

Sigmundur Davíð varpar ljósi á bílferðina með Ingu Sæland: „Núna leggjum við á ráðin“

Einar Þór Sigurðsson, Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 29. nóvember 2018 12:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir að Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hafi hringt í hann eftir kosningarnar haustið 2017 með það fyrir augum að flokkarnir mynduðu bandalag. Þetta má heyra á leyniupptökunum sem DV hefur undir höndum og fjallað um.

Inga Sæland sat í aftursætinu á bílnum. Sigmundur Davíð sat í framsætinu. Skjáskot af vef RÚV.

Eins og margir muna mættu Sigmundur Davíð og Inga saman til Bessastaða til að funda Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, þann 30. október í fyrra. Inga sat í aftursætinu á bíl Sigmundar en þennan dag ræddu formenn allra flokka á þingi við forseta um stjórnarmyndun. Áður hafði Sigmundur lýst því yfir að hann vildi fá umboð til stjórnarmyndunar og sagði síðan að hann hefði rætt við Ingu, þó þau hefðu „ekki beint“ myndað formlegt bandalag eins og RÚV hafði eftir honum.

Í samtölum við fjölmiðla eftir fund sinn við forseta var Inga spurð út þetta meinta bandalag. „Ég hef nú ekki heyrt um neitt bandalag,“ sagði hún og bætti við að hún hefði spjallað við Sigmund á óformlegum nótum.  Inga Sæland sagði á þessum tíma:

„Við erum náttúrulega afskaplega lík um margt í okkar málefnastefnu þannig að eðli málsins samkvæmt tölum við saman, eins og margir aðrir,“ sagði hún og bætti við að „allt kæmi til greina“ varðandi samstarf við aðra flokka, Miðflokkinn þar á meðal.

Á upptökunum sem DV hefur undir höndum heyrist þegar þingmennirnir ræða um Ingu Sæland og virðist Sigmundur varpa ákveðnu ljósi á hvað gerðist í aðdraganda þess að þau mættu saman til fundar á Bessastöðum.

Sigmundur Davíð: „Allt of lengi var ég auðvitað meðvirkur með henni. Hún mætti stundum á fundi Framfarafélagsins og þetta var svona kona sem að „ég er bara að berjast fyrir […] Fínt að hafa svona konu með. Svo var hringt heima hjá mér og það var bara „núna leggjum við á ráðin, þessir tveir flokkar mynda bandalag.“

Óþekktur aðili: „Hún er algjörlega óstjórntæk“

Sigmundur Davíð: „Ég var ekki búinn að átta mig á því á þeim tíma. Það ber bara vott um skort minn á að vera mannþekkjari.“

Anna Kolbrún: „Þú ert svo góður maður Sigmundur.“

Gunnar Bragi: „Það er þinn versti löstur hvað þú ert allt of góður maður.“

Anna Kolbrún: „Það er alveg rétt.“

Ólafur: „Af vinunum skulum við þekkja þá.“

Sigmundur Davíð: „Ég hugsaði, hér er komin alþýðukona með trausta menn með sér (á við Ólaf og Karl) og  nú gerum við bandalag. Ég hugsaði, látum þá sjá þetta, að við séum komin í bandalag. Ég keyri á Bessastaði, svo sé ég hana í sjónvarpinu sama dag og það var ekki neitt á hana að treysta.“

Einn heimildarmanna DV sem þekkir vel til fullyrðir að Inga Sæland hafi dregið í land eftir að hafa orðið var við óánægjuraddir við fyrirhugað samstarf. Samstarfið hafi hins vegar verið frágengið en Inga gugnað þegar á hólminn var komið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Víðir fékk að heyra það frá fréttakonu Stöðvar 2 eftir pistil sem hann skrifaði

Víðir fékk að heyra það frá fréttakonu Stöðvar 2 eftir pistil sem hann skrifaði
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Saka Rússa um að nota efnavopn

Saka Rússa um að nota efnavopn
Fréttir
Í gær

Sökuð um að stela tæplega níu milljónum frá Grunnskólanum á Þórshöfn og félagsmiðstöð í Langanesbyggð

Sökuð um að stela tæplega níu milljónum frá Grunnskólanum á Þórshöfn og félagsmiðstöð í Langanesbyggð
Fréttir
Í gær

Svört skýrsla um rekstur hestamannafélagsins Fáks – Fullyrðingar um svartar launagreiðslur, ólöglegt vinnuafl og óeðlileg vildarkjör – Formaður félagsins segir skýrsluna einhliða og ekki gefa rétta mynd

Fyrir 2 dögum

María Sigrún svarar Degi fullum hálsi og birtir samskiptin – Segir viðbrögð fyrrum borgarstjóra „nýja upplifun“

María Sigrún svarar Degi fullum hálsi og birtir samskiptin – Segir viðbrögð fyrrum borgarstjóra „nýja upplifun“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigurbjörg sakar Ásdísi um ólýðræðisleg vinnubrögð – „Hér er verið að afvegaleiða umræðuna,“ segir bæjarstjórinn

Sigurbjörg sakar Ásdísi um ólýðræðisleg vinnubrögð – „Hér er verið að afvegaleiða umræðuna,“ segir bæjarstjórinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur undrandi á Kastljóssþætti Maríu Sigrúnar – „Drungalegt fundarherbergi og fiðlutónlist undir“

Dagur undrandi á Kastljóssþætti Maríu Sigrúnar – „Drungalegt fundarherbergi og fiðlutónlist undir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sá grunaði í Hamraborgar-ráninu bar ábyrgð á hrinu innbrota á höfuborgarsvæðinu fyrir rúmum áratug

Sá grunaði í Hamraborgar-ráninu bar ábyrgð á hrinu innbrota á höfuborgarsvæðinu fyrir rúmum áratug