fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fréttir

Silja Dögg tilkynnti Kristjón fyrir netníð: „Hlægilegt brölt hjá kjána“

„Það ætti að tjarga hana og fiðra og hengja upp í næsta ljósastaur,“ sagði Kristjón Benediktsson

Hjálmar Friðriksson
Föstudaginn 2. mars 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristjón Benediktsson segir að tilkynning Silju Daggar Gunnarsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, til lögreglu á meintum hótunum hans í hennar garð sé einfaldlega kjánaskapur. Hún greindi frá því vikunni að hún hafi tilkynnt lögreglu um hótanir um pyntingar en hún er fyrsti flutningsmaður framvarpsins sem bannar umskurð drengja. Sitt sýnist hverjum um það frumvarp en Kristjón er meðal þeirra sem fordæmir það fyrir gyðingahatur.

„Ég rakst á níð um sjálfan mig á nokkrum stöðum, ásakanir um athyglissýki, gyðingahatur, heimsku, sveitamennsku (sem mér finnst reyndar meðmæli) og ýmislegt fleira miður fallegt. Sumum fannst við hæfi að stinga upp á aðferðum til að meiða mig og pynta. Ég hef látið lögregluna vita, að sjálfsögðu,“ sagði Silja Dögg á Facebook-síðu sinni.

„Hengja uppí næsta ljósastaur“

Orðin sem Kristjón lét falla á Facebook hljóðuðu svo: „Það ætti að tjarga hana og fiðra og hengja uppí næsta ljósastaur svona eins og í sólarhring, þennan viðbjóðslega gyðingahatara!“ Kristjón staðfestir í samtali við DV að þingmaðurinn hafi tilkynnt sig en hann frétti sjálfur af því þegar lögreglumaður hringdi í hann.

„Þetta er nú svo fáránlegt. Það hringir í mig maður sem kynnir sig sem rannsóknarlögreglumann um tvöleytið í gær. Það var þessi taktík: „Ég heiti þetta og er rannsóknarlögreglumaður“ og svo kemur þögn. Þetta átti augljóslega að skjóta mér skelk í bringu. Ég spyr hann um erindið og hann segist þurfa að fá mig í skýrslugerð,“ segir Kristjón. Hann segist ekki hafa haft tíma til að rjúka út á lögreglustöð á miðvikudaginn og því hafi niðurstaðan orðið að lögreglumaðurinn myndi hringja aftur, sem hann hafði ekki gert síðdegis á fimmtudag.

Með ólíkindum

Kristjón furðar sig á því að stuttu síðar mætir Silja Dögg í Reykjavík síðdegis og fullyrðir að lögreglan muni hafa samband við hann og hafi staðfest að um væri að ræða netníð. „Hvað er eiginlega í gangi? Getur þingmaður farið til lögreglu og fengið mál afgreitt á nokkrum mínútum? Getur hún látið hringja í fólk út í bæ eftir pöntun? Þetta er með ólíkindum. Ljóst er að ef hún er að segja satt, þá þarf að rannsaka starfshætti lögreglu. Það embætti stingur niður í skúffu svo mánuðum skiptir alvarlegri kæru um misnotkun á börnum af starfsmanni hins opinbera kerfis, en afgreiðir mál hennar á nokkrum mínútum,“ segir Kristjón.

Stendur við orð sín

Kristjón segist mótmæla því harðlega að ummæli sín séu netníð eða hótun. Hann viðurkennir þó fúslega að hann hafi tekið harkalega til orða. „Ég kalla hana gyðingahatara og stend við það. Hún fellur nákvæmlega undir þá skilgreiningu. Þetta frumvarp snýr að forsendu gyðingdóms en það er enginn umskorinn á Íslandi. Með því að setja lög á þetta hér á landi er verið að meina þessum trúarhópi að setjast hér að. Þetta er rasismi af verstu gerð,“ segir Kristjón.

Hann fullyrðir að fyrrnefnd ummæli beinist ekki beint að Silju Dögg heldur gyðingahöturum almennt: „Ég er ekki að fjalla um hennar persónu sem slíka, gyðingahatara á að tjarga og fiðra og hengja í staur. Ég er að tala um hana sem gyðingahatara. Þetta er bara hlægilegt og það verður aldrei nokkurn tímann neitt úr þessu máli. Þetta er bara hlægilegt brölt hjá kjána.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum
Enn einn Snapchat-perrinn
Fréttir
Í gær

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum
Fréttir
Í gær

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
Fréttir
Í gær

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum