fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
Fréttir

Teitur segir umskurn minnka kynnautn: „Ofbeldissinnuðustu þjóðir heimsins eru umskornar þjóðir“

Hjálmar Friðriksson
Miðvikudaginn 21. febrúar 2018 10:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Teitur Atlason, fyrrverandi varaformaður Neytendasamtakanna, segir á Facebook-síðu sinni að umskurn drengja sé enn ein birtingarmynd þess að „holdið“ sé komið frá djöfullinum. Hann telur að helsta markmið umskurnar drengja sé að minnka kynnautn karlmanna. Umskurn drengja er orðin eitt heitasta deilumál íslensk samfélags eftir að Silja Dögg Gunnarsdóttir ásamt öðrum þingmönnum lagði fram framvarp á Alþingi þar sem stefnt er að banni á umskurn drengja. Hart hefur verið tekist á um málið en frétt DV frá því í gær þar sem Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju, sagði að Íslendingar yrðu að bíta á jaxlinn og að taka yrði samtal um frumvarpið en margir vilja ekki sjá slíkt samtal og telja að það segi sig sjálft að umskurður á drengjum eða stúlkum eða annað óafturkræft inngrip eigi ekki að eiga sér stað á þeim tímum sem við lifum. Teitur Atlason segir:

„Mikið hjartanlega er ég ósammála þeim sem hrópa á torgum um að umskurn drengja sé menningarlegt og fjölmenningarlegt og sáttmáli milli guðs og Abrahams og ég veit ekki hvað og hvað. Umskurn drengja er framkvæmd til að minnka kynnautn karlmanna og i þeirri von að þetta komi í veg fyrir sjálfsfróun. Enn ein birtingarmynd þess að „holdið“ sé frá djöflinum komið.“

Hann segir umskurð á fullorðinsaldri í góðu lagi en enginn megi ákveða það fyrir lítil börn. „Efist einhver um ágæti umskurðarbanns, ætti að athuga að bæði gyðingar og múslímar eru hjartanlega sammála um að svona bann sé hið versta mál. Hvað segir það manni þegar tveir trítilóðir eru skyndilega sammála um eitthvað? Umskurður er í góðu lagi en það á enginn að ákveða umskurð fyrir lítil börn. Þau geta bara ákveðið það þegar þau verða fullorðin. Einn sem ég þekki varpaði fram góðum punkti varðandi umskurð karlmanna. Ofbeldissinnuðustu þjóðir heimsins eru umskornar þjóðir. Karlar þessara þjóða fá aldrei almennilegar fullnægingar og þessi spenna brýst út í frekju og ofbeldi. Fínasti punktur og umhugsunarverður,“ segir Teitur. Hann er spurður út í hvaða þjóðir hann eigi við og þá bendir Teitur á fyrrnefnda múslíma og gyðinga auk Bandaríkjamanna.

Uppfært: Teitur Atlason óskaði eftir að koma eftirfarandi athugarsemd á framfæri við lesendur

Athugasemd við frétt sem unnin var úr Facebook uppfærslu.

Ég rak augun í frétt á DV sem unnin var upp úr hugleiðingu minni á Facebook í gær. Mér finnst það ágætt en hefði ég vitað þetta fyrirfram hefði ég vandað orðavalið betur. Ég vildi t.d hafa sleppt því að tala um ofbeldishneigðustu þjóðir heimsins væru umskorningar. Þetta er bara bull og glannatal. Það kom svo síðar fram í athugasemdunum að ég ætti við gyðinga og múslima og Bandaríkjamenn. Í fyrsta lagi eru múslimar ekki þjóð en stundum er talað um gyðinga sem þjóð en þeir eru það ekki í skilningi laganna. Bandaríkjamenn voru þjóð síðast þegar ég gáði.

Hefði blaðamaðurinn skoðað athugasemdirnar aðeins nánar hefði hann/hún séð að Skúli Pállson heimspekingur drap þessa pælingu eiginlega strax með eftirfarandi spurningunni: „Eða saga Evrópu: Hverjir voru ofbeldisfyllri, þessir umskornu eða hinir? Ég svaraði undirleitur. „Forhúðin vinnur allt eftir 1945“.

Þó að pælingin um tengsl yfirgangsvilja og umskurðar sé forvitnileg, er hún að öllum líkindum ónýt. Annað stend ég við. -Umskurður sveinbarna er sorglegt stef við hugmyndina um að kynlíf sé slæmt og kynnautn fólks verri. -Umskurður sveinbarna er gerður til að reyna að hindra sjálfsfróun og skemma kynnautn karlmanna. -Umskurður sveinbarna er villimannslegur og að heyra afsakanir sem vísa í eitthvað fornaldar-þrugl um “sáttmála við Abraham” er einfaldlega út á túni og sá/sú sem ætlar að nota þetta í alvöru umræðu, ætti að útilokast frá henni. Að lokum vona ég að umskurður sveinbarna verði bannaður á Íslandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálinu

Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálinu
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Hrafn sá mann „chugga“ flösku af Egils Orku

Hrafn sá mann „chugga“ flösku af Egils Orku
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“
Fréttir
Í gær

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika
Fréttir
Í gær

Pawel ánægður með að Sjálfstæðismenn vilji samþykkja þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður – „Mistök í skjalavinnslu“ segir Jón Pétur

Pawel ánægður með að Sjálfstæðismenn vilji samþykkja þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður – „Mistök í skjalavinnslu“ segir Jón Pétur
Fréttir
Í gær

Vill aukið eftirlit með störfum lögreglu – „Nú hefur lögreglan beitt rafbyssu á mann sem var að hlaupa í burtu frá henni“

Vill aukið eftirlit með störfum lögreglu – „Nú hefur lögreglan beitt rafbyssu á mann sem var að hlaupa í burtu frá henni“
Fréttir
Í gær

Láta Snorra heyra það vegna færslu um tjáningarfrelsi og ESB – „Ef svo er, þá er þessi málflutningur þinn alveg óboðlegur“

Láta Snorra heyra það vegna færslu um tjáningarfrelsi og ESB – „Ef svo er, þá er þessi málflutningur þinn alveg óboðlegur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“