Alma Þöll, 18 ára stúlka, lést í bílslysi á Grindavíkurvegi á fimmtudag


„Gegn almættinu er máttur manns lítill en sem hluti af samfélagi getur maður létt undir með fjölskyldunni,“ segir Guðrún Jóna Magnúsdóttir. Síðastliðinn fimmtudag lést Alma Þöll Ólafsdóttir í hörmulegu bílslysi á Grindavíkurvegi. Alma var 18 ára gömul og búsett í Grindavík.
Aðstandendur og fjölskylduvinir hafa blásið til söfnunar til að létta undir með fjölskyldu Ölmu eftir slysið, sem varð norðan við afleggjarann að Bláa lóninu á fimmtudagsmorgun.
Aðstandendur söfnunarinnar gáfu DV góðfúslegt leyfi til að birta meðfylgjandi upplýsingar.
„Kæru vinir, vinir vina og allir sem þetta lesa! Ung stúlka Alma Þöll Ólafsdóttir var hrifin á brott frá fjölskyldu og vinum fyrirvaralaust í hræðilegu bílslysi á Grindavíkurvegi þann 12. janúar síðastliðinn. Áfallið er mikið fyrir aðstandendur, ættingja, vini og skólafélaga. Gegn almættinu er máttur manns lítill en sem hluti af samfélagi getur maður létt undir með fjölskyldunni,“ segir Guðrún Jóna í færslunni og bætir við:
„Við vitum að þarna úti er fólk sem hugsar það sama og við og er tilbúið að leggja til aura með það í huga að margt smátt gerir eitt stórt. Við viljum ekki bíða eftir mánudeginum og því er bankabók í nafni Óla Björns Björgvinssonar kt.111167-5409 banki 0143-05-060699 tileinkuð þessari söfnun,“ segir Guðrún Jóna en reikningurinn er í nafni eiginmanns hennar.
„Vonumst til að sem flestir sjái sér fært að leggja inn og eiga þátt í að létta undir með fjölskyldunni á þessum erfiðu tímum. <3 Ást og friður til ykkar allra<3.
P.S. Það væri þakkarvert ef þið mynduð deila þessu áfram til ykkar vina og svo koll af kolli svo sem flestir geti lagt sitt af mörkum.“