fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024

Sprenghlægilegar sögur af hormónafullum óléttum íslenskum konum

Aníta Estíva Harðardóttir
Föstudaginn 23. febrúar 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flestar konur sem gengið hafa með barn undir belti kannast við þá óstjórnlegu hormónaframleiðslu sem líkaminn setur af stað nánast um leið og pissað er á prófið.

Hormónarnir gera það að verkum að konan verður virkilega tilfinninganæm á meðan á meðgöngunni stendur og oft í nokkra mánuði eftir á.

Það eru því flestar mæður sem eiga skemmtilegar sögur af sjálfum sér frá því þær voru óléttar og réðu ekki við allar þær tilfinningar sem brutust um í brjósti þeirra.

Bleikt hafði samband við mæður sem voru tilbúnar til þess að deila fyndnum og vandræðalegum atvikum sem þær lentu í þegar þær voru óléttar:

°°

Ég grét alltaf þegar ég sá lokin á fréttatímanum. Þá meina ég þegar fréttaþulurinn sagði: „Við ætlum að ljúka þessum fréttatíma af svipmyndum frá tjörninni í Reykjavík“

°°

Ég var að horfa á sjónvarpsþáttinn Nágrannar þegar einhverjir unglingar í þáttunum lentu í bílslysi. Það kom læknir á staðinn og reyndi að bjarga þeim úr bílnum en skar sig á hendinni. Ég fór að hágrenja og á sama tíma hringir mamma í mig og spyr mig hvað sé eiginlega í gangi. Ég útskýrði það fyrir henni og hún fékk alveg áfall og fer að spyrja mig nánar út í það hvaða nágrannar mínir þetta hafi verið. Þá svaraði ég henni ennþá grenjandi: „Neiiii í sjónvarpinu“. Og þá sprakk hún úr hlátri.

°°

Ég fékk mikla áráttu fyrir því að dýfa banana ofan í kók og sjúga svo kókið af og dýfa aftur þegar ég var ólétt af mínu fyrsta barni. Mér fannst þetta ekkert athugavert fyrr en fólk fór að nefna það við mig að það væri nú hálf furðulegt að ég væri sjúgandi banana hvar og hvenær sem er.

°°

Ég átti við mikið minnisleysi að stríða þegar ég var ólétt. Í eitt skipti ætlaði ég að stökkva út í búð en fattaði að ég hafði gleymt veskinu mínu þegar ég var komin út götuna. Ég keyrði því til baka og fór alla leið upp á þriðju hæð. Fékk mér vatnsglas og fór svo aftur út í bíl. Keyrðu út götuna og áttaði mig þá á því að ég hafði aftur gleymt veskinu. Ég keyrði því aftur til baka og gekk aftur upp á þriðju hæð, fór að pissa og aftur út. Þegar ég áttaði mig á því að ég hafði gleymt veskinu í þriðja sinn þá fór ég til baka, beint upp, sótti veskið og keyrði svo grenjandi út í búð og mundi svo ekkert hvað það var sem ég ætlaði að kaupa.

°°

Þegar ég var ólétt elskaði ég að narta í svampa og pappanum sem ef aftan á stílabókum. Ég skammaðist mín mikið.

°°

Þegar ég var ólétt síðast fyrir næstum því sex árum þá langaði mig svo hrikalega mikið í Subway bát að ég gat ekki hugsað um neitt annað. Við kærasti minn sátum út í bíl og ég bað hann um að keyra mig út á skaga en við búum í Borgarnesi. Hann nennti því alls ekki og fór inn, en ég sat í frekjukasti dauðans, hágrenjandi úti í bíl, hringjandi í hann og sendandi skilaboð því ég átti svo mikið bágt. Loksins gafst hann upp og keyrði mig út á skaga til þess að kaupa Subway. Um daginn komumst við að því að ég er aftur ólétt og hann tilkynnti mér strax að hann ætlaði sko EKKI með mig aftur út á skaga fyrir einn Subway bát, sama hversu mikið ég myndi suða.

°°

Ég missti vatnið klukkan 2:20 að nóttu til, kallinn minn var í vinnunni og kom og sótt mig til þess að keyra mig á fæðingardeildina í Keflavík. Ég var með mikla samdrætti og var másandi og hvásandi í bílnum. Þegar við nálgumst N1 í Hafnarfirði æpi ég á hann að ég VERÐI að fá Tívolí Lurk svo hann fer þangað inn og kaupir handa mér tvo Lurka. Við vorum svo komin inn á sjúkrahús klukkan 4:20 og drengurinn fæddist 6:20. Þetta var besti ís sem ég hef fengið og kallinn minn var sko alveg búin að læra að það er best að hlíða óléttri konu. Jafnvel á síðustu metrunum!

°°

Ég var alveg lyktarsjúk á síðustu meðgöngu. Ég keyrði í gegnum Hvalfjarðargöngin með rúðuna niðri því mér fannst mengunar lyktin svo góð, ég vökvaði blauta mold til þess að finna lyktina af henni, elskaði ísskáps lyktina, og þvoði oft hreinan þvott aftur afþví að mér fannst lyktin af blautum þvotti svo góð. Eitt skipti þá týndi maðurinn minn mér í Hagkaup og fann mig þar sniffandi af öllum gúmmí stígvélunum. Svo fannst mér lyktin af sementi svo unaðsleg að ég var nokkrum sinnum beðin um að yfirgefa byggingarsvæðið hjá Deloitte turninum í Kópavogi, ég barðist við löngunina um að kaupa mér sement og borða það!

°°

Þegar ég var ólétt vann ég í Smáralindinni og við barnsfaðir minn vorum bara á einum bíl. Ég keyrði á bílnum í vinnuna um morguninn og hringdi svo í mömmu og bað hana um að skutla mér heim eftir vinnu. Svo þegar barnsvaðir minn kom heim ætlaði hann út í búð og spurði mig hvar ég hafði lagt bílnum. Ég kannaðist ekkert við það þar til ég áttaði mig á því að ég hafði gleymt honum í Smáralindinni.

°°

Ég talaði einu sinni ekki við kærastann minn í heilt kvöld og grenjaði og grenjaði af því að hann sat út í bíl í fimm mínútur eftir að hann kom á planið til þess að klára símtal. Ég hélt að hann vildi ekki koma inn af því að ég var svo leiðinleg ólétt.

°°

Ég var með svakalega ógleði alla síðustu meðgöngu og hélt engu niðri. Það eina sem ég gat borðað voru Bónus kanilsnúðar sem ég dýfði ofan í jarðaberjajógúrt. Eitt kvöldið kláraði kallinn minn snúðana og ég fór að hágráta. Ég tapaði mér svo algjörlega og hótaði honum að koma sér út.

°°

Eitt skipti þegar ég var ólétt fékk ég æði fyrir því að borða Morgunblaðið. Ég prófaði Fréttablaðið en það var ekki eins gott svo ég gerði áskrifandi að Mogganum í þrjá mánuði.

°°

Ég og vinkona mín vorum óléttar á sama tíma. Við fengum báðar æði fyrir tannkremi og við sátum fyrir framan sjónvarpið með sitthvora túbuna.

°°

Þegar ég var ólétt af mínu öðru barni bjó ég í Mexíkó. Ég var með algjört æði fyrir lakkrís en hann var auðvitað ekki til þar. Einn daginn keypti ég mér ný rúmföt og koddaverið var svart. Um nóttina dreymir mig að ég sé að borða lakkrís, fann bragðið og allt. Þetta var æðislegur draumur og ég svo glöð að vera að bragða á þessu sælgæti. Vaknaði svo um morguninn með eitt bandið af koddaverinu upp í mér.

°°

Þegar ég var ólétt af elsta barninu mínu þá hótaði ég barnsföður mínum að ég myndi drepa hann útaf því að hann kom með volgt kók handa mér. Þetta hefði ekki verið eins slæmt ef þetta hefði ekki verið á miðju Ingólfstorgi á 17. júní fyrir framan fullt af fólki. Það héldu allir að hann hefði gert mér eitthvað en þá stóð ég bara grenjandi og sagðist bara vilja ískalt kók.

°°

Karlinn bauðst til þess að hjálpa mér með þvottinn þegar ég var ólétt af yngra barninu. Hann braut handklæðin ekki saman eins og ég vildi að þau væru þannig að ég fór að grenja og var miður mín.

°°

Ég elskaði tjöruhreinsislykt og var alltaf með tusku hjá mér með tjöruhreinsi í svo ég gæti sniffað. Kærasti minn faldi svo tjöruhreinsi brúsann svo ég myndi hætta þessu en ég grét svo mikið að hann endaði á því að gefa mér brúsan aftur. Ég tala nú ekki um Scrubstone efnið, ég var alltaf næstum því farin að éta það.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Áhugaverð niðurstaða nýrrar rannsóknar á háhyrningum

Áhugaverð niðurstaða nýrrar rannsóknar á háhyrningum
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

England: Liverpool mistókst að vinna West Ham

England: Liverpool mistókst að vinna West Ham
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Mjög óöruggur í starfi og fær engin skilaboð – ,,Höfum ekkert talað saman síðustu mánuði“

Mjög óöruggur í starfi og fær engin skilaboð – ,,Höfum ekkert talað saman síðustu mánuði“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Segir útspil Hermanns hafa komið sér á óvart – „Mér fannst það sérstakt“

Segir útspil Hermanns hafa komið sér á óvart – „Mér fannst það sérstakt“
Eyjan
Fyrir 9 klukkutímum

Snorri Jakobsson: Verðtryggingin dregur úr virkni stýrivaxta Seðlabankans

Snorri Jakobsson: Verðtryggingin dregur úr virkni stýrivaxta Seðlabankans
Pressan
Fyrir 9 klukkutímum

Jákvæð niðurstaða nýrrar meðferðar við Parkinson

Jákvæð niðurstaða nýrrar meðferðar við Parkinson