„Þegar maður horfist í augu við dauðann, Einar hefði getað dáið eða ég, hugsar maður; svona getur gerst á broti úr sekúndu. Þess vegna verður maður alltaf að nýta hvert augnablik,“ segir Svala Björgvinsdóttir söngkona. Önnur lífssýn beið hennar og eiginmanns hennar, Einars Egilssonar eftir alvarlegt bílsslys á Reykjanesbraut fyrir níu árum en slysið hafði varanleg áhrif á líf þeirra.
Svala segir frá bílslysinu, baráttu sinni við kvíða og þáttökunni í Eurovision í Ný sýn, nýjum sjónvarpsþætti sem sýndur verður á mánudagskvöld í Sjónvarpi Símans – einungis sólarhring fyrir undankeppnina í Eurovision.
Slysið átti sér stað árið 2008 þegar Svala og Einar voru leið út á Keflavíkurflugvöll þar sem Steed Lord var að fara að hefja tónleikaferðalag um Evrópu. Með í för voru bræður Einars og faðir þeirra, Egill Eðvarðsson. Ökumaður bifreiðar sem kom úr gagnstæðri átt missti stjórn á henni og lenti framan á bíl hópsins. Öll slösuðust þau alvarlega og dvaldi Einar í fjóra mánuði á spítala.
„Ég man hvernig við öskruðum saman strákarnir, þetta var mesta hræðsla sem ég hef upplifað. Maður bara fann bílinn koma og tók á móti honum. Svo kom bara höggið,“ rifjar Einar upp. „Ég man bara að það kom blóð út úr mér og svo bara stoppaði tíminn,“ bætir hann við. Egill, faðir Einars rifjar slysið einnig upp og kveðst hafa haldið að þarna hafi hans seinasta stund verið runnin upp. :
„Svo bara kemur þögn. Dauðaþögn. Maður hugsaði bara: „Já..það er svona þegar maður deyr..?““
Hlið við hlið lágu þau í sjúkrarúmum, hún rifbeinsbrotin og hann meðvitundarlaus eftir alvarlegar innvortis blæðingar og stóra aðgerð. „Mér var ekki sagt það þá en þeir [læknarnir] vildu bara að ég myndi sjá hann ef hann myndi fara,“ segir söngkonan í áhrifamikilli frásögn þeirra hjóna í þættinum, en Svala undirbýr sig nú fyrir undankeppni Eurovision í Kænugarði í Úkraínu á þriðjudag.
Svala og Einar eru sammála um að slysið hafi algjörlega breytt sýn þeirra á lífið en í kjölfarið fengu þau meðal annars kjark til þess að stökkva út í óvissuna og láta drauma sína rætast.
„Enda flytjum við til Los Angeles árið eftir,“ segir Svala. „Seldum allar mublurnar okkar, íbúðin sem við áttum í leigu. Mér var einhvern vegin alveg sama, mig langaði bara að fara á vit ævintýranna, búa í annarri borg, fara bara út með ferðatöskur og föt. Ég hafði ekki verið þannig.“
[youtube https://www.youtube.com/watch?v=qF1y5tUse54&w=600&h=258]
Þátturinn verður í Sjónvarpi Símans mánudaginn 8. maí kl. 20. Þættirnir Ný sýn verða fimm og rekja allir sögu þekktra landsmanna, sem hafa tekist á við erfiða lífreynslu á athyglisverðan hátt. Hugrún Halldórsdóttir stýrir þáttunum, sem Skot Productions framleiðir fyrir Símann, og Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir er framleiðslustjórinn. Næstu þættir verða sýndir kl. 20 á fimmtudagskvöldum frá 18. maí í Sjónvarpi Símans. Þeir sem ekki geta beðið geta horft á þættina þegar hentar í efnisveitunni Sjónvarpi Símans Premium frá fimmtudeginum 4. maí.