fbpx
Föstudagur 12.desember 2025
Fókus

Handtekinn sama dag og hann var tilnefndur til Grammy-verðlauna

Fókus
Þriðjudaginn 11. nóvember 2025 07:49

Rod Wave á sviði. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðastliðinn föstudagur verður líklega lengi í minnum hafður hjá bandaríska rapparanum Rod Wave.

Hann var tilnefndur til Grammy-verðlauna um morguninn fyrir lag sitt Sinners en síðar um daginn var hann handtekinn af lögreglunni í Atlanta.

Wave, sem heitir réttu nafni Rodarius Green, er grunaður um vopnalagabrot, vörslu fíkniefna og ógætilegan akstur. Þurfti hann að dúsa í fangageymslu aðfaranótt laugardags.

Verjandi rapparans segir að hann hafi verið ranglega stimplaður og ólöglega handtekinn, og ýjar að því að húðlitur hans hafi átt þar hlut að máli. Sagði hann að Wave hlakkaði til að sanna sakleysi sitt fyrir dómi þegar þar að kemur.

Wave er þrítugur en lagið sem hann er tilnefndur fyrir hljómaði í samnefndri kvikmynd sem frumsýnd var fyrr á árinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Leikarinn hefur misst yfir 75 kíló – Þetta borðar hann til að viðhalda þyngdartapinu

Leikarinn hefur misst yfir 75 kíló – Þetta borðar hann til að viðhalda þyngdartapinu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Bonnie Blue handtekin í Balí og gæti átt yfir höfði sér 15 ára fangelsisvist

Bonnie Blue handtekin í Balí og gæti átt yfir höfði sér 15 ára fangelsisvist