fbpx
Föstudagur 12.desember 2025
Fókus

Kristjáni blöskraði útfararkostnaður og skrifaði bók – „Hvernig höndlum við dauðann?“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 11. nóvember 2025 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristján Hreinsson hefur sent frá sér bókina Einfaldar útfarir – Allir velkomnir. Um er að ræða hugleiðingar vítt og breitt um dauðann en kveikjan að verkinu liggur í gagnrýni á útfararkostnað. Blaðamaður DV sagði við Kristján að verkið, þó að mestu ólesið, virkaði sérviskulega á hann, sem og tilefni skrifanna. Kristján vísar í káputexta bókarinnar þar sem gerð er eftirfarandi grein fyrir verkinu:

„Fyrst ber hér að nefna að þessi samantekt mín hefur ekkert með afstöðu mína til trúarbragða að gera. Ég hef aldrei náð að tileinka mér trú eða trúarbrögð. Ég hef einkum farið í kirkju þegar ég hef verið viðstaddur útför. Bókarkorn þetta fjallar um útfarir og flest sem þeim tengist. Akkúrat ekkert segir mér að ég sé beinlínis mótfallinn útförum. Samt vil ég velta upp spurningum sem ég tel að flestir hafi hugleitt en fæstir hafi svarað. Oft hef ég spurt mig spurninga eins og: Hvað er útför? Hver er tilgangurinn með útför? Er útför nauðsynleg þegar andlát ber að garði? Hver vegna er útför sett í trúarlegan búning? Hvað kostar útför? Er sorgin nauðsynleg? Er sorgin jafnvel óþörf? Ættum við kannski að fagna í stað þess að syrgja? Ef við trúum á eilíft líf og eilífa fyrirgefningu, er dauðinn þá nokkuð annað en gjöf til farsældar? Ættum við ef til vill að fagna dauðanum?

Hugmyndin að því að taka þetta saman kom til mín árið 2019 þegar ég var á flugvelli í London á leið til Mílanó. Þetta var á tíma hinnar frægu farsóttar og útfarir í Evrópu voru sagðar stórfengleg tekjulind á Covid-tímanum. Hreinlega var talað um útfaraiðnað. Maður heyrði fólk stöðugt tala um farsóttina, sjúkrahúsin, útfarirnar og óttann við dauðann. Ég spurðir mig því einfaldrar spurningar og fékk einfalt svar. Grunnspurning mín var þessi: „Hvað er dauði?“ Svarið var einfaldlega á þessa leið: „Dauði er það sem tekur við þegar maður er búinn að lifa.“ Dauði er óhjákvæmilegt framhald lífsins. Hvort eitthvað tekur við eftir dauðann eður ei er hér algjörlega látið liggja á milli hluta. Það er verklagið sem hér er í brennidepli, meðhöndlun dauðra líkama er viðfangsefni þessarar bókar. Þegar dauða ber að garði þá eigum við þann kost að syrgja, jafnvel árum saman. Samtímis eigum við kost á að sætta okkur við orðinn hlut. Það sem ég sé aðkallandi þegar maður deyr, er einlæg sátt og hjartnæmt þakklæti. Stóra spurningin er: Hvernig höndlum við dauðann?“

Útför ekki nauðsynleg

Kristján hendir á lofti athugasemd blaðamanns um sérvisku og segir að sín sérviskulegu skrif leiði í ljós að útför þurfi ekki að kosta neitt:

Og ef þú spyrð: „Hvers vegna þetta sérviskulega verk?“ Þá er svar mitt einfalt: „Mig langaði að komast að því hvað er nauðsynlegt varðandi útfararbruðlið. Og ég komst að þvi, eftir langa leit, að útför er ekki nauðsynleg. Framkvæmdin sem er nauðsynleg er svona: Þegar maður deyr þá þurfa aðstandendur dánarvottorð, með það í höndum má láta grafa lík eða brenna. Kostnaðurinn er ekki ein einasta króna. Hið merkilega er að greitt hefur verið fyrir brennslu og greftrun með sköttum. Engu að síður er fólki ávallt sagt að nauðsynlegt sé að hafa samband við prest og útfararstofu. Mín sérviskulegu skrif sýna og sanna að útför getur verið einföld og þarf ekki að kosta neitt.“

Bókin Einfaldar útfarir – Allir velkomnir er til sölu í verslunum Pennans/Eymundsson.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Leikarinn hefur misst yfir 75 kíló – Þetta borðar hann til að viðhalda þyngdartapinu

Leikarinn hefur misst yfir 75 kíló – Þetta borðar hann til að viðhalda þyngdartapinu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Bonnie Blue handtekin í Balí og gæti átt yfir höfði sér 15 ára fangelsisvist

Bonnie Blue handtekin í Balí og gæti átt yfir höfði sér 15 ára fangelsisvist