fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fókus

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu

Fókus
Föstudaginn 10. apríl 2026 16:30

Paulina er orðin 61 árs og líður vel í eigin skinni. Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tékkneska ofurfyrirsætan Paulina Porizkova fagnaði 61 árs afmæli sínu í gær með einlægri færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún ræddi opinskátt um sjálfsmynd, öldrun og það hvernig viðhorf hennar til eigin líkama hefur breyst með árunum.

Við sama tilefni birti hún myndband af sér þar sem hún spókar sig um í rauð- og hvítröndóttu bikiníi og sýnir vel tónaðan líkama sinn.

Porizkova rifjaði upp að hún hefði í raun verið hvað óöruggust þegar hún var yngri og á hátindi fyrirsætuferils síns.

„Ég verð 61 árs á morgun og ég geri mér grein fyrir að þetta kann að hljóma galið fyrir þig, en fyrir 40 árum, þegar ég var 21 árs og á hátindi ferils míns og fyrirsætudýrðarinnar, þá var það einmitt tíminn þegar ég var hvað óöruggust,“ sagði hún.

Hún sagði að endalaus samanburður við aðrar fyrirsætur hefði haft mikil áhrif á sjálfsmynd hennar á þeim tíma. „Mér fannst ég aldrei vera nógu góð,“ bætti hún við.

Porizkova sagði að sjálfsvirði hennar hefði áður nær eingöngu byggst á útlitinu, en að það hefði breyst verulega með aldrinum.

„Svo í dag er ég að máta þetta sæta sumar-bikiní og spenni vöðvana sem ég hef unnið rassinn af mér fyrir – ekki endilega til að líta sem best út í þessu bikiníi, heldur til að líða sem best á þessum tímamótum í lífi mínu,“ sagði hún.

Hún viðurkenndi þó með gamansömum hætti að útlitið skipti hana enn máli.

„Reyndar, hvern er ég að plata? Ég hef aukið æfingaálagið um svona tíu gíra því ég vil auðvitað líta sem best út í sumar – en ekki endilega í bikiníi … heldur í brúðarkjól,“ sagði hún en hún trúlofaðist rithöfundinum Jeff Greenstein í fyrrasumar og ætlar parið að láta pússa sig saman í sumar.

Paulina Porizkova fæddist í Tékkóslóvakíu árið 1965, en ólst að stórum hluta upp í Svíþjóð eftir að fjölskylda hennar sameinaðist á ný í kjölfar pólitískra sviptinga kalda stríðsins. Hún sló í gegn aðeins 18 ára gömul þegar hún varð fyrsta konan frá Mið-Evrópu á forsíðu Sports Illustrated árið 1984, sem markaði upphaf alþjóðlegs fyrirsætuferils hennar.

Síðar varð hún eitt þekktasta andlit tískuheimsins á níunda áratugnum og samdi meðal annars við snyrtivörurisann Estée Lauder í samningi sem var á sínum tíma einn sá hæst launaði í fyrirsætuheiminum.

Auk fyrirsætustarfa hefur hún einnig starfað sem leikkona, rithöfundur og pistlahöfundur, og á síðari árum vakið athygli fyrir hreinskilna umræðu um öldrun og sjálfsmynd kvenna.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Paulina Porizkova (@paulinaporizkov)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Leyndarmálið úr æsku Steinunnar Ólínu verður enn myrkara – „Ég vildi komast lifandi heim tíl mín“

Leyndarmálið úr æsku Steinunnar Ólínu verður enn myrkara – „Ég vildi komast lifandi heim tíl mín“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona eru stjörnumerkin í rúminu

Svona eru stjörnumerkin í rúminu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ferðalangar segja íbúa þessara landa sérlega kurteisa – Sjáðu topp 10

Ferðalangar segja íbúa þessara landa sérlega kurteisa – Sjáðu topp 10
Fókus
Fyrir 5 dögum

Steinunn Ólína opinberar myrkt leyndarmál frá æskuárunum – „Hann meiddi mig“

Steinunn Ólína opinberar myrkt leyndarmál frá æskuárunum – „Hann meiddi mig“
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó aflýsir tónleikum: „Komið var í veg fyrir það að þessu sinni“

Ingó aflýsir tónleikum: „Komið var í veg fyrir það að þessu sinni“
Fókus
Fyrir 1 viku

Þessi matvæli eru sögð virka eins og megrunarlyfin vinsælu

Þessi matvæli eru sögð virka eins og megrunarlyfin vinsælu
Fókus
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna sló í gegn hjá skólastúlkum – „Það var svo sérstakt að hlusta á þig“

Áslaug Arna sló í gegn hjá skólastúlkum – „Það var svo sérstakt að hlusta á þig“
Fókus
Fyrir 1 viku

Hljópst þú apríl? – Mikill metnaður og fjölbreytni í aprílgöbbum ársins

Hljópst þú apríl? – Mikill metnaður og fjölbreytni í aprílgöbbum ársins
Fókus
Fyrir 1 viku

Manstu eftir Susan Boyle? Aðdáendur trúa því vart hvernig hún lítur út í dag

Manstu eftir Susan Boyle? Aðdáendur trúa því vart hvernig hún lítur út í dag