fbpx
Miðvikudagur 15.apríl 2026
Fókus

Steinunn Ólína opinberar myrkt leyndarmál frá æskuárunum – „Hann meiddi mig“

Fókus
Laugardaginn 4. apríl 2026 20:00

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona segir frá því að brotið hafi verið á henni af manni sem hún kallar barnaníðing, þegar hún var fjögurra ára gömul. Maðurinn kenndi henni á fiðlu og var fjölskylduvinur. Steinunn Ólína segir að henni hafi verið bannað að tala um það sem gerðist en nú meira en hálfri öld síðar telur hún tímabært að segja frá þessu og að svona nokkuð eigi ekki að liggja í þagnargildi.

Hlaðvarpið nefnir Steinunn Ólína Mín saga: Ólínuskjölin. Alls verða þættirnir átta en sá fyrsti hefur verið birtur en hlaðvarpið er aðgengilegt á Pardus.is en greiða þarf fyrir aðgang að þeim hlaðvörpum sem þar eru aðgengileg.

Fiðlukennarinn er látinn. Hann bæði kenndi og lék á fiðlu en Steinunn Ólína var fjögurra ára þegar hún byrjaði að læra á fiðlu hjá honum. Hún segir fiðlukennarann hafa notið mikillar virðingar og haft töluverð áhrif á íslenskt tónlistarlíf. Þar að auki hafi hann verið aufúsugestur á heimili móðurfjölskyldu hennar. Fiðlukennarinn hafi hins vegar verið barnaníðingur:

„Hann meiddi mig.“

Steinunn Ólína segir móður sína hafa í kjölfarið þurft að fara með hana til læknis. Hún segist þekkja tvær aðrar manneskjur sem séu þolendur fiðlukennarans.

Að segja frá

Steinunn Ólína segir að eitt skipti þó kannski mestu máli um það sem hún varð fyrir af hálfu þessa manns:

„Mér var bannað að tala um þetta.“

Hún vill meina að þegar barni sé bannað að segja sannleikann þá sé því kastað út úr veröldinni sem verði þá að stað þar sem fólki sé bannað að segja hvernig því líði.

Á Íslandi hafi ekki þótt fínt að tala um svona athæfi af hálfu manna sem séu látnir en spyrja verði hvort slík þögn snúist ekki aðallega um vernda mannorð hinna látnu fremur en að hlúa að velferð hinna lifandi:

„Ég gef því skít í siðaumleitanir þeirra sem vilja ekki bera ljós að því sem myrkt er í okkar samfélagi. Það er eina leiðin til bata að við sem þjóð kíkjum í skúmaskotin og hreinsum loftið.“

Steinunn Ólína boðar áframhald á frásögn sinni af broti fiðlukennarans gegn henni í næstum þáttum hlaðvarpsins en eins og áður segir er og verður það aðgengilegt á Pardus.is

Uppfært páskadag kl. 12:45:

Steinunn Ólína hefur birt eftirfarandi fréttatilkynningu um hlaðvarpsseríuna:

Ný hlaðvarpssería, Mín saga: Ólínuskjölin, hefur nú göngu sína á vefnum Pardus og er fyrsti þátturinn nú aðgengilegur almenningi. Þættirnir eru átta talsins og birtast allir í aprílmánuði 2026. Í þáttunum segir Steinunn Ólína hluta sögu sinnar í eigin orðum – sögu sem spannar áratugi og fjallar um ofbeldi, þöggun, réttlæti, samfélag og stöðu barna og kvenna á Íslandi.

Ólínuskjölin eru ekki aðeins persónuleg frásögn heldur einnig samfélagsleg speglun. Í þáttunum er fjallað um hvernig þögn og skömm hafa áhrif á líf einstaklinga og hvernig samfélög bregðast við – eða bregðast ekki við – þegar alvarleg mál koma upp. Þættirnir eru settir fram í anda íslenskrar frásagnarhefðar, þar sem persónuleg saga er sögð í stærra samhengi samfélags og samtíma.

Markmið þáttanna er að opna samtal um reynslu sem margir bera í þögn og spyrja áleitinna spurninga um réttlæti, ábyrgð og samfélag. 

Með þáttunum vill Steinunn Ólína einnig ná til þeirra sem kunna að deila svipaðri reynslu og skapa vettvang fyrir samtal og skilning.

Þættirnir eru aðgengilegir á:
https://pardus.is/olinuskjolin

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Afrika Bambaataa er látinn

Afrika Bambaataa er látinn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Vinsæll rithöfundur stígur fram eftir 23 ára nafnleysi eftir að hún var sökuð um að vera þrír karlmenn

Vinsæll rithöfundur stígur fram eftir 23 ára nafnleysi eftir að hún var sökuð um að vera þrír karlmenn