

Dan Simpson, sem er 68 ára og búsettur í Boise í Idaho, hefur starfað sem pizzasendill í aukastarfi síðustu ár til að drýgja tekjurnar.
Atvikið átti sér stað 27. mars þegar Simpson var á leið með pizzupöntun til Brian Wilson og eiginkonu hans. Áður en hann lagði af stað komst hann að því að Domino’s staðurinn þar sem hann starfar ætti ekki Diet Coke sem hjónin höfðu pantað með matnum.
Hann hringdi til að láta þau vita og kanna hvort þau vildu eitthvað annað í staðinn, en þegar ekkert svar barst ákvað hann að finna aðra lausn.
Simpson stoppaði í matvöruverslun á leiðinni og keypti tvær tveggja lítra flöskur af Diet Coke fyrir eigin peninga áður en hann mætti heim til þeirra með sendinguna.
Dyrabjöllumyndavél við heimili Wilson-hjónanna náði komu Simpsons á myndband. Þar sést hann afhenda pizzurnar ásamt gosinu, biðjast afsökunar á óþægindunum og gera lítið úr eigin góðverki.
Brian birti upptökuna á TikTok og lýsti því sem hafði gerst og er óhætt að segja að myndbandið hafi farið sem eldur í sinu um netið. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og þúsundir netverja lýstu yfir að þeir vildu gjarnan sýna Simpson stuðning.
Í kjölfarið stofnaði Wilson söfnunarsíðu á GoFundMe til að hjálpa Simpson að njóta eftirlaunaáránna. „Ef lítið góðverk getur haft svona mikil áhrif á okkur, ímyndið ykkur þá hvað heilt samfélag getur gert fyrir hann,“ skrifaði Wilson á söfnunarsíðunni.
Frá því söfnunin hófst hafa safnast yfir 76 þúsund dalir, sem jafngildir um 9,5 milljónum íslenskra króna. Simpson sagðist í samtali við Idaho Statesman vart hafa trúað eigin augum þegar framlögin fóru að berast.
„Þetta getur ekki verið raunverulegt,“ sagðist hann hafa hugsað þegar hann fylgdist með símanum sínum.
Simpson hefur starfað sem pizzusendill í 14 ár samhliða dagvinnu hjá landbúnaðaryfirvöldum í Idaho. Hann segist hafa einsett sér það fyrir margt löngu að vera öðrum hjálplegur og almennilegur því hann viti hvernig það er að eiga erfitt.
Hann segist ekki ætla að setjast í helgan stein alveg strax en viðurkennir þó að hann gæti látið gamlan draum rætast bráðlega og farið til Hawaii.
@katey_93 When Domino’s is out of Diet Coke, but your delivery driver stops at the store to get it for you. Dan, you went above and beyond tonight, thank you!The world needs more Dans. Happy almost retirement! #dominos #fyp ♬ original sound – Katey Ann