

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur eins og kunnugt er verið í námsleyfi í Bandaríkjunum. Hún hefur verið mjög dugleg við að greina frá lífi sínu vestanhafs á samfélagsmiðlum. Nýlega hélt hún ræðu fyrir hóp af stúlkum á því skólastigi þar vestra sem kallað er high school og er fyrir nemendur á aldrinum 14-18 ára. Miðað við færslu Áslaugar Örnu á Instagram vakti ræðan mikla lukku hjá stúlkunum en þær sendu henni fjölmörg þakkarbréf.
Áslaug Arna segist hafa sagt stúlkunum frá reynslu sinni af stjórnmálaþátttöku og af því að hafa áhrif þótt hún væri og sé enn ung að árum en skemmst er að minnast þess að hún var 28 ára þegar hún varð fyrst ráðherra í ríkisstjórn Íslands.
Fram kemur að alls hafi 130 stúlkur frá New York ríki mætt á samkomuna sem var á vegum samtakanna Running Start sem styðja við bakið á ungum konum við að taka að sér forystuhlutverk í stjórnmálum.
Áslaug Arna segir að þetta verði einn af hápunktum ársins hjá sér. Stúlkurnar hafi spurt hana beittra og hreinskilina spurninga um sjálfstraust, gagnrýni, sundrungu og að stíga fram þegar auðveldara sé að gera það ekki.
Áslaug Arna segir það hafa komið henni í opna skjöldu hversu áhugasamar stúlkurnar séu um að taka þátt í stjórnmálum. Framtíðin velti á fólki sem sé viljugt til að stíga fram. Hún þakkar að lokum stúlkunum kærlega fyrir og segist kunna að meta þær meira en þær geri sér grein fyrir.
Miðað við þakkarbréfin og ummæli við færsluna er þessi tilfinning gagnkvæm hjá stúlkunum:
„Það var svo sérstakt að hlusta á þig.“
„Þú og þín saga gáfuð mér nauðsynlega von.“
„Þú ert stórkostleg kona sem svo margar stúlkur líta upp til.“
„Þú veittir mér svo mikinn innblástur (og kveiktir hjá mér löngun til að flytja til Íslands).“
„Takk fyrir að vera frábær fyrirmynd fyrir ungar konur.“
Athygli vekur að margar stúlkurnar sem skrifuðu þakkarbréf lögðu sig fram við að stafsetja nafn Áslaugar Örnu í samræmi við íslenskan rithátt. Ef lesendur hafa ekki áttað sig ennþá á því þá má taka það fram að bréfin sem Áslaug Arna birtir myndir af eru öll handskrifuð og því er ljóst að listin að skrifa sendibréf er ekki útdauð meðal ungdómsins vestanhafs. Það er kannski eitthvað sem jafnaldrar þeirra á Íslandi mættu líta til.
Færsla Áslaugar er hér fyrir neðan en ef hún sést ekki er ráð að endurhlaða síðuna.
View this post on Instagram