fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Fókus

Ferðalangar segja íbúa þessara landa sérlega kurteisa – Sjáðu topp 10

Fókus
Mánudaginn 6. apríl 2026 06:00

Frá Japan. Mynd/Pixabay

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viðmót heimamanna getur skipt sköpum fyrir upplifun ferðalanga, jafnvel þótt það virðist ekki vera stærsti þátturinn þegar fólk velur áfangastað. Kurteisi, virðing og það að gestir finni sig velkomna getur haft úrslitaáhrif á hvernig fólk upplifir ferðalag sitt.

Ný könnun frá fjármálaþjónustufyrirtækinu Remitly, sem ferðavefurinn Time Out fjallar um, varpar ljósi á hvaða þjóðir þykja kurteisastar í heimi.

Alls tóku 4.600 manns í 26 löndum þátt í könnuninni, þar sem þeir voru beðnir um að meta upplifun sína af móttöku heimamanna á ferðalögum sínum um heiminn.

Þótt könnunin sé fremur til gamans gerð gefa niðurstöðurnar áhugaverða vísbendingu um hvaða þjóðir þykja skara fram úr í lipurð og kurteisi.

Niðurstöðurnar sýna að Japan trónir á toppnum sem kurteisasta land heims. Alls sögðu rúm 35 prósent svarenda að Japan skaraði fram úr þegar kæmi að kurteisi. Það kemur kannski ekki á óvart fyrir þá sem hafa heimsótt Japan.

Í öðru sæti á listanum er Kanada og Bretland þriðja sæti. Þessar þjóðir eiga ýmislegt sameiginlegt í ímynd sinni, meðal annars tilhneigingu til að biðjast afsökunar oftar en tilefni er til og tíð notkun orðanna „please“ og „thank you“.

Í fjórða og fimmta sæti eru síðan Kína og Þýskaland.

10 kurteisustu lönd heims samkvæmt könnuninni:

  1. Japan
  2. Kanada
  3. Bretland
  4. Kína
  5. Þýskaland
  6. Filippseyjar
  7. Svíþóð
  8. Danmörk
  9. Finnland
  10. Suður-Afríka
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“
Fókus
Í gær

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Aldur hefur ekkert að gera með hvort þú náir vel saman við einhverja manneskju“

„Aldur hefur ekkert að gera með hvort þú náir vel saman við einhverja manneskju“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Afrika Bambaataa er látinn

Afrika Bambaataa er látinn
Fókus
Fyrir 1 viku

Vinsæll rithöfundur stígur fram eftir 23 ára nafnleysi eftir að hún var sökuð um að vera þrír karlmenn

Vinsæll rithöfundur stígur fram eftir 23 ára nafnleysi eftir að hún var sökuð um að vera þrír karlmenn