fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fréttir

Sakar mæðgur um að hafa birt dánartilkynningu um sig í Morgunblaðinu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 10. apríl 2026 08:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Morgunblaðinu í morgun birtist dánartilkynning um Sölva Guðmundarson, mann sem er í fullu fjöri. Var hann sagður hafa látist þann 13. mars og að útför hafi þegar farið fram.

Sölvi segir mæðgur standa að baki tilkynningunni og önnur konan var í fréttum í fyrra vegna ásakana um umsáturseinelti. Hafa sjö karlar kært hana fyrir umsáturseinelti.

Sölvi greinir frá málinu á Facebook-síðu sinni:

„Kæru ættingjar og vinir þið sem hafið verið að senda skilboð og athuga hvort ég sé í alvöru dáinn, þá er svo alls ekki og er ég sprelllifandi.

Svona sjáið þið hvernig fárveik kona og móðir hennar vinna Íris Helga og Ólöf Kristín

Þetta er ekkert grín að eiga við svona andskotans viðbjóði meðan lögvaldið klórar sér í rassgatinu!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“
Fréttir
Í gær

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?
Fréttir
Í gær

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“