

„Þótt Plovdiv sé vissulega ekki vanmetin meðal Búlgara virðist hún árið 2026 enn ekki fá þá viðurkenningu sem hún á skilið meðal evrópskra ferðalaga,“ segir í umsögn Time Out.
„Það er engin ástæða fyrir því að næststærsta borg Búlgaríu ætti ekki að vera ofarlega á radarnum hjá þér; úrval sögulegra kennileita og forvitnilegra staða er einstaklega fjölbreytt og matar- og drykkjarmenning borgarinnar er ein sú mest spennandi í þessum hluta álfunnar. Gamli bærinn í Plovdiv er klárlega aðalnúmerið – ótrúlega fallegt völundarhús steinlagðra gatna þar sem saga leynist við hvert horn – á meðan hið einstaklega vel varðveitta fornrómverska leikhús, Philippopolis, gnæfir stolt yfir borginni. Útsýnið er stórbrotið,“ segir enn fremur.
Hér að neðan má sjá topp 10 lista Time Out en þess má til gamans geta að Vestmannaeyjar eru fulltrúi Íslands á listanum í 18. sætinu.
1. Plovdiv, Búlgaríu
2. Ulcinj, Svartfjallalandi
3. Ghent, Belgíu
4. Bitola, Norður-Makedóníu
5. Derry, Norður-Írlandi
6. Livno, Bosníu og Hersegóvínu
7. Terracina, Ítalíu
8. Izola, Slóveníu
9. Villach, Austurríki
10. Gerés, Portúgal