fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fókus

Fékk ógnandi skilaboð eftir afhjúpanirnar – „Það gera menn með vonda samvisku“

Fókus
Þriðjudaginn 7. apríl 2026 13:00

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona hefur greint frá því í nýju hlaðvarpi að þrír menn hafi brotið á henni kynferðislega í þremur aðskildum málum þegar hún var barn og unglingur. Segir hún í nýrri Facebook-færslu að hún hafi fengið góð viðbrögð við hlaðvarpinu og henni hafi borist frásagnir frá öðrum þolendum en einnig ógnandi skilaboð.

Tveir þættir af hlaðvarpinu hafa verið gefnir út en hægt er að kaupa aðgang í gegnum pardus.is.

Í fyrsta þætti greindi Steinunn Ólína frá broti sem hún segist hafa orðið fyrir af hálfu manns sem kenndi henni á fiðlu, þegar hún var fjögurra ára.

Steinunn Ólína opinberar myrkt leyndarmál frá æskuárunum – „Hann meiddi mig“

Í öðrum þætti greindi hún frá broti sem hún verð fyrir þegar hún var nýbyrjuð í grunnskóla, af hálfu annars manns og svo öðru sem hún varð fyrir af hálfu þriðja mannsins þegar hún var á unglingsaldri.

Leyndarmálið úr æsku Steinunnar Ólínu verður enn myrkara – „Ég vildi komast lifandi heim tíl mín“

Steinunn Ólína segist ætla að birta sérstakan aukaþátt af hlaðvarpinu sem verði ólíkt hinum í opinni dagskrá.

Þar muni hún flytja varnaðarorð til upplýsingar þeim sem upplifi sig fasta í einhverju ósýnilegu neti.
Hún hafi annars fengið góðar viðtökur við hlaðvarpinu og borist frásagnir frá öðrum þolendum. Hins vegar hafi ekki öll þau skilaboð sem hún hefur fengið verið kærkomin:

„En þar sem mér eru líka farin að berast annarskonar bréf, ég er ekki að færa í stílinn, að kalla það heldur ógnandi þvingunarbréf, því hverskonar karlmenn senda konu sms skilaboð með beiðni um samtal seint að kvöldi Páskadags? Ég skal svara því: Það gera menn með með vonda samvisku. Sagan um manninn með vondu samviskuna verður líka sögð en fyrst segi ég aðrar sögur sem þurfa að heyrast öðrum til varnaðar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslandsvinurinn Grohl fer til sálfræðings sex sinnum í viku eftir framhjáhaldið – „Ég þurfti að slökkva á öllu“

Íslandsvinurinn Grohl fer til sálfræðings sex sinnum í viku eftir framhjáhaldið – „Ég þurfti að slökkva á öllu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leyndarmálið úr æsku Steinunnar Ólínu verður enn myrkara – „Ég vildi komast lifandi heim tíl mín“

Leyndarmálið úr æsku Steinunnar Ólínu verður enn myrkara – „Ég vildi komast lifandi heim tíl mín“
Fókus
Fyrir 1 viku

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó aflýsir tónleikum: „Komið var í veg fyrir það að þessu sinni“

Ingó aflýsir tónleikum: „Komið var í veg fyrir það að þessu sinni“