fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fókus

Íslandsvinurinn Grohl fer til sálfræðings sex sinnum í viku eftir framhjáhaldið – „Ég þurfti að slökkva á öllu“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 7. apríl 2026 12:30

Dave Grohl eignaðist barn utan hjónabands.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rokkarinn og Íslandsvinurinn Dave Grohl fer til sálfræðings sex sinnum í viku eftir að upp komst um framhjáhald hans. Segist hann vera staðráðinn í að endurvinna traust eiginkonunnar.

Greint var frá því í september árið 2024 að Grohl, sem er á miðjum sextugsaldri, hafi eignast stúlkubarn utan hjónabands.

„Nýlega varð ég faðir nýfæddrar stúlku, sem fædd er utan hjónabands míns. Ég ætla mér að verða henni ástríkt og styðjandi foreldri. Ég elska eiginkonu mína og börnin mín og ég mun gera allt sem ég get til að endurvinna traust þeirra og öðlast fyrirgefningu þeirra,“ sagði Grohl í tilkynningu.

Dave Grohl er söngvari og gítarleikari hljómsveitarinnar Foo Fighters en hann var áður trymbill í Nirvana. Hann hefur komið til Íslands í nokkur skipti með hinu fyrrnefnda bandi. Hann hefur verið giftur konu að nafni Jordyn Blum síðan árið 2003 og eiga þau þrjú börn saman.

Sjá einnig:

Opinberað hver konan er sem Dave Grohl átti lausaleiksbarnið með

Í febrúar árið 2025 var greint frá því að konan sem hann hefði eignast stúlkuna með héti Jennifer Young og væri 38 ára gömul. Hún var búsett hjá móður sinni í Los Angeles og unnu þær saman að uppeldi dótturinnar.

Í nýju viðtali breska blaðsins The Guardian við Grohl segist hann vera að taka á málinu af festu. Í meira en ár hafi hann farið til sálfræðings sex sinnum í viku til að vinna í sér. Tímarnir séu orðnir 430 talsins.

„Ég þurfti að slökkva á öllu, eitt af því sem ég hafði áhyggjur af var hvernig annað fólk myndi bregðast við,“ sagði Grohl. „Að geta lokað á þennan hluta af sjálfum þér getur verið mjög holl æfing þegar kemur að því að íhuga lífið í þínu nánasta umhverfi. Að gefa þessu öllu of mikið vægi innra með þér getur eyðilagt þig algjörlega.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Jóhann Páll eignaðist dreng

Jóhann Páll eignaðist dreng
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leyndarmálið úr æsku Steinunnar Ólínu verður enn myrkara – „Ég vildi komast lifandi heim tíl mín“

Leyndarmálið úr æsku Steinunnar Ólínu verður enn myrkara – „Ég vildi komast lifandi heim tíl mín“
Fókus
Fyrir 1 viku

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó aflýsir tónleikum: „Komið var í veg fyrir það að þessu sinni“

Ingó aflýsir tónleikum: „Komið var í veg fyrir það að þessu sinni“