fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fókus

Manstu eftir Susan Boyle? Aðdáendur trúa því vart hvernig hún lítur út í dag

Fókus
Miðvikudaginn 1. apríl 2026 09:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska tónlistarkonan Susan Boyle hefur vakið mikla athygli aðdáenda sinna eftir að hún sýndi nýtt og glæsilegt útlit á samfélagsmiðlum, sautján árum eftir að hún sló í gegn í Britain’s Got Talent.

Söngkonan, sem varð 65 ára á miðvikudag, skartar ljósu stuttu hári sem margir segja að geri hana nánast óþekkjanlega. Aðdáendur hafa hrósað henni í hástert og segja hana hafa yngst um mörg ár.

Boyle, sem heldur úti Instagram-síðu með um 176 þúsund fylgjendum, heldur fylgjendum sínum upplýstum með svipmyndum úr sínu daglega lífi, allt frá hádegisverðum með vinum til viðburða með þekktum stjörnum.

Viðbrögðin létu ekki á sér standa eftir nýjustu færslu hennar. „Susan, þú lítur stórkostlega út,“ skrifaði einn aðdáandi og annar sagði: „Nýi liturinn er fullkominn á þér, þú hefur yngst um mörg ár.“

Þrátt fyrir alþjóðlega frægð hefur Susan Boyle haldið fast í rætur sínar og er hún þekkt fyrir mikla hógværð. Hún hefur lengi búið í bænum Blackburn í Skotlandi og hafa heimamenn lýst henni eins og hverjum öðrum bæjarbúa.

Daily Mail ræddi til dæmis við starfsmann kaffihúss sem Boyle sækir reglulega. „Hún er í raun mjög venjuleg. Hér er hún engin stórstjarna. Hún kemur inn glöð, gefur manni faðmlag og fær sér hrærð egg, ristað brauð og tebolla.“

Þá sögðu nágrannar hennar að hún leggi sitt af mörkum til góðgerðarmála án þess að gera mikið úr því. „Susan hefur aldrei gleymt hvaðan hún kemur. Hún hefur tíma fyrir alla og hjálpar mörgu fólki, en talar aldrei um það,“ sagði einn þeirra.

Ljósu lokkarnir fara Susan Boyle vel. Mynd/Instagram

Hér má svo sjá augnablikið þegar hún varð heimsfræg á einni nóttu:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Fékk áfall þegar hún kíkti í síma eiginmannsins – Það var bara upphafið að martröðinni

Fékk áfall þegar hún kíkti í síma eiginmannsins – Það var bara upphafið að martröðinni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fréttin sem Jóhann Hlíðar neitar að skrifa

Fréttin sem Jóhann Hlíðar neitar að skrifa
Fókus
Fyrir 1 viku

Kynlífsstellingar til að prófa um páskana – Páskakanínan og danglaðu gulrótinni

Kynlífsstellingar til að prófa um páskana – Páskakanínan og danglaðu gulrótinni
Fókus
Fyrir 1 viku

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix