

Þann 24-26. apríl næstkomandi verður haldið kóramót 13 kóra í Lundi í Svíþjóð. Allir kórarnir eru skipaðir Íslendingum sem búa erlendis en í tilkynningu frá skipuleggjendum segir meðal annars að mótið eigi sér langa sögu og sýni vel hversu sterkar hinar íslensku rætur séu meðal Íslendinga sem búsettir séu utan landsteinana.
Mótið sem ber heitið Voiceland 2026 verður haldið eins og áður segir í Lundi. Laugardaginn 25. apríl næstkomandi klukkan 17 að staðartíma fara á mótinu fram tónleikar, með öllum kórunum, en mótið sjálft stendur yfir alla helgina. Það fer fram í menningar- og samkomumiðstöðinni Stadshallen.
Í tilkynningu frá skipuleggjendum mótsins segir að um einstakan menningarviðburð sé að ræða þar sem rúmlega 240 söngvarar úr 13 íslenskum kórum víðs vegar frá Norðurlöndunum og London komi saman:
„Mótið á sér yfir 30 ára sögu og er lifandi vitnisburður um hversu sterkar íslensku ræturnar eru meðal þeirra sem búsettir eru erlendis.“
Segir enn fremur að á efnisskránni verði fjölbreytt úrval, allt frá ættjarðarlögum til nútímalegra útsetninga.
Kórarnir sem taka þátt og kórstjórar þeirra eru:
Staka – Gustav Aske Sønksen
Eyja – Jónas Ásgeir Ásgeirsson
Hafnarbræður – Eyrún Inga Magnúsdóttir
Dóttir – Eyrún Inga Magnúsdóttir
Ískórinn – Ketil Grøtting
Laffi Vocal Ensemble – Rebekka Ingibjartsdóttir
Íslenski kórinn í London – Helgi Rafn Ingvarsson
Íslendingakór Árósa – Gunnar Sigfússon
Sönghópurinn í Bergen – Orri Backman
Íslenski kórinn í Gautaborg – Daniel Ralphsson
Kór Kjartans – Andreas Dundas Helgheim
Íslenski kórinn í Lundi – Halldór Karvel Bjarnason
Íslenski kórinn í Stokkhólmi – Bryndís Ásta Magnúsdóttir
Í fyrri útgáfu fréttarinnar var farið rangt með heiti mótsins og dagsetningu þess. Beðist er velvirðingar á þessu.