

Ingó tilkynnir þetta á Facebook-síðu sinni og segir að allir sem höfðu tryggt sér miða fái endurgreitt.
„Tónleikahaldarinn mun skýra þetta mál nánar á næstu dögum. Planið var að styrkja hið góða starf sem unnið er á Sólheimum og gleðja fólkið þar en komið var í veg fyrir það að þessu sinni, en áfram gakk,“ segir Ingó og bætir við að hann ætli að reyna að koma sem fyrst aftur og halda alvöru gigg.
Ingólfur var talsvert í umræðunni fyrir nokkrum árum eftir að margvíslegar ásakanir gegn honum fóru á kreik. Hann sneri aftur snemma árs 2023 þar sem hann hélt nokkra tónleika í Háskólabíói fyrir fullum dyrum.
Ingólfur fer ekki nánar í saumana á því hvers vegna aflýsa þurfi tónleikunum, en talsverð umræða var um þá í Facebook-hópnum Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu.
Þar blandaði Kristín Þórunn Tómasdóttir, sóknarprestur í Skálholti sem einnig þjónar á Sólheimum, sér í umræðuna. Tók hún það fram að hún hefði ekkert með bókanir í kirkjunni að gera enda sé Sólheimakirkja á vegum Sólheima sjálfra. Tók hún fram að um „réttmætar pælingar“ væri að ræða um tónleikana og sagði svo að lokum: „Niður með ofbeldismenningu! Gleðilega páska og við missum ekki móðinn.“
Ingólfur segir í samtali við mbl.is um málið að aðilar á vegum fyrrnefnds baráttuhóps gegn ofbeldismenningu hafi sett sig í samband við Sólheima og forsvarsmenn kirkjunnar. Ingó segist hafa ætlað sér að styrja Sólheima og það góða starf sem þar er unnið.
„Það er búið að skemma bæði tekjur og styrki til Sólheima og líka skemmtilegt gigg fyrir fólkið þarna upp frá. Svona vinnur ákveðinn hópur af fólki. Það er ekki verið að reyna að gera neitt nema að koma í veg fyrir að ég haldi tónleika. Þeim hefur með þessu tekist að eyðileggja fyrir fólkinu á Sólheimum,“ segir Ingólfur meðal annars við mbl.is.