fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fókus

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix

Fókus
Föstudaginn 3. apríl 2026 18:00

Þættirnir hafa vakið nokkuð umtal.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pör sem eru á leið í hjónaband hafa verið hvött til að hugsa sig tvisvar um áður en þau setjast niður fyrir framan nýjustu hryllingsseríu Netflix, Something Very Bad Is Going to Happen, sem þegar hefur vakið töluverða athygli meðal áhorfenda.

Serían, sem er framleidd af Duffer-bræðrum og sköpuð af Haley Z. Boston, spannar átta þætti og segir frá verðandi hjónunum Rachel og Nicky sem undirbúa brúðkaup sitt í afskekktum fjölskyldukofa.

Sagan gerist dagana fyrir athöfnina, en hefst á svipmynd úr framtíðinni sem gefur sterklega til kynna blóðugan og átakanlegan endi.

Í kjölfarið er sögunni snúið aftur til upphafsins þar sem áhorfendur fylgjast með því hvernig spennan magnast smám saman upp. Undarlegir atburðir fara að gerast og Rachel sannfærist um að eitthvað skelfilegt sé yfirvofandi.

Boston hefur sagt að kjarni þáttanna sé óttinn við að giftast röngum einstaklingi. Hún hefur meðal annars vísað til þess ráðs sem móðir hennar gaf henni í æsku: að passa sig á því að giftast ekki röngum aðila. Má segja að þau heilræði hafi orðið grunnurinn að sögunni.

Ólíkt mörgum hryllingsþáttum eða myndum byggir serían ekki fyrst og fremst á atriðum sem fær fólk til að stökkva upp úr sófanum, frekar hægfara spennu, sterkri persónusköpun og sívaxandi ónotakennd sem sest að hjá áhorfandanum eftir því sem tíminn líður.

Gagnrýnendur hafa bent á að efni þáttanna geti haft sérstök áhrif á pör sem eru trúlofuð eða í föstu sambandi. Sumir hafa jafnvel gengið svo langt að segja að serían geti fengið fólk til að efast um eigið samband og hugsa sig tvisvar um áður en það gengur í hjónaband.

Kvikmyndagagnrýnandinn Alex Maidy sagði til dæmis: „Ef Jaws fékk fólk til að óttast sjóinn, þá mun Something Very Bad Is Going To Happen hræða líftóruna úr öllum sem eru að hugsa um að gifta sig.“

Þrátt fyrir slíkar viðvaranir hefur serían notið mikilla vinsælda. Fjöldi áhorfenda segist hafa horft á alla átta þættina í einum rykk og hrósar bæði frumleika, stíl og hrollvekjandi andrúmslofti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Fékk áfall þegar hún kíkti í síma eiginmannsins – Það var bara upphafið að martröðinni

Fékk áfall þegar hún kíkti í síma eiginmannsins – Það var bara upphafið að martröðinni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fréttin sem Jóhann Hlíðar neitar að skrifa

Fréttin sem Jóhann Hlíðar neitar að skrifa
Fókus
Fyrir 1 viku

Kynlífsstellingar til að prófa um páskana – Páskakanínan og danglaðu gulrótinni

Kynlífsstellingar til að prófa um páskana – Páskakanínan og danglaðu gulrótinni
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó aflýsir tónleikum: „Komið var í veg fyrir það að þessu sinni“

Ingó aflýsir tónleikum: „Komið var í veg fyrir það að þessu sinni“