fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fókus

Afrika Bambaataa er látinn

Fókus
Föstudaginn 10. apríl 2026 09:23

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski tónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Afrika Bambaataa er látinn, 67 ára að aldri. Bambaataa, sem hét réttu nafni Lance Taylor, sló rækilega í gegn á níunda áratugnum með laginu Planet Rock.

Hann, og hljómsveit hans, Zulu Nation, eru sagðir hafa meðal annarra komið rappinu á heimskortið. Kollegi hans úr Zulu Nation, Mick Benzo, greindi frá andláti vinar síns á samfélagsmiðlum í gær.

Sagðist hann hafa talað við hann fyrir nokkrum dögum og hljóðið í honum hafi verið gott. BAndarískir fjölmiðlar greina frá því að Bambaataa hafi látist í svefni. Heimildir TMZ herma að hann hafi glímt við krabbamein um hríð.

Afrika Bambaataa braust fram á sjónarsviðið í Bronx í New York á áttunda áratugnum, stofnaði samtökin Universal Zulu Nation og átti stóran þátt í að koma sveitum á borð við Soulsonic Force á laggirnar.

Um tíu ár eru síðan Africa Bambaata var í heimsfréttunum vegna ásakana um kynferðisofbeldi sem náðu aftur til níunda áratugarins. Stigu fjórir karlmenn fram í viðtali við New York Post og sögðu hann hafa misnotað sig þegar þeir voru börn.

Tónlistarmaðurinn neitaði ásökununum staðfastlega.

Árið 2016 stóð til að hann kæmi fram á Secret Solstice-tónlistarhátíðinni í Reykjavík. Tónleikum hans var aflýst í kjölfar fyrrnefndra ásakana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Líf harmar að hafa lækað þessa færslu – „Mjög leiðinleg skrunmistök“

Líf harmar að hafa lækað þessa færslu – „Mjög leiðinleg skrunmistök“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Biður íslensku þjóðina afsökunar á neyðarlegum mistökum – „Stundum sagt að allt geti gerst í beinni útsendingu“

Biður íslensku þjóðina afsökunar á neyðarlegum mistökum – „Stundum sagt að allt geti gerst í beinni útsendingu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Rósa fékk áfall þegar hún las utan á umbúðirnar – „Mér leið í tvo daga eins og rúta hafi keyrt á mig“

Rósa fékk áfall þegar hún las utan á umbúðirnar – „Mér leið í tvo daga eins og rúta hafi keyrt á mig“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Inga greinir frá andláti föður síns – „Hann var sæll að fá að fara“

Inga greinir frá andláti föður síns – „Hann var sæll að fá að fara“
Fókus
Fyrir 1 viku

Hvetur alla til að lesa lýsingar leikkonunnar á heimilisofbeldinu sem hann beitti hana – „Ég var fullur“

Hvetur alla til að lesa lýsingar leikkonunnar á heimilisofbeldinu sem hann beitti hana – „Ég var fullur“
Fókus
Fyrir 1 viku

Rod Stewart ánægður með Karl eftir heimsóknina til Trump – „Sagðir þessum rottuhala til syndanna“

Rod Stewart ánægður með Karl eftir heimsóknina til Trump – „Sagðir þessum rottuhala til syndanna“