fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

„Svo notfærir hann sér mig kynferðislega“

Fókus
Miðvikudaginn 1. apríl 2026 22:00

Sara Gabríela Gunnlaugsdóttir segir frá erfiðri reynslu sinni. Mynd: Aðsend.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sara Gabríela Gunnlaugsdóttir er gagnrýnin á menningu sem hún segir að þrífist innan andlega geirans á Íslandi. Menningu þar sem karlar nálgist konur með áfallasögu í þeim tilgangi að brjóta á þeim kynferðislega.

Hún ræðir þetta í viðtali við hlaðvarpið Karlmennskan en umsjónarmaður þess er Þorsteinn V. Einarsson. Sara Gabríela segir svo frá:

„Þar nálgast mig karlmaður. Ég held að þetta sé algengt, að vera að nálgast konur sem eru undir áhrifum af molly eða sveppum. Ég er að segja nei, ég er ekki á þessum stað. Og hann segir að ég sé að ofhugsa þetta og að hann geti hjálpað mér. Svo notfærir hann sér mig kynferðislega. Ég fór að gráta. Hann stoppar og talar um að hann vilji hjálpa mér. Ég áttaði mig ekki fyrr en löngu seinna að þetta væri nauðgun.“ 

Sara Gabríela notar TikTok til að koma gagnrýni sinni á framfæri og segir að fjöldi fólks hafi ráðlagt henni að þegja:

Ég upplifi eins og ég sé kisa sem er að fara að kasta þessu öllu niður. Og ég gæti gert það. En ég veit ekki hvernig ég á að gera það.

Frelsa með fingrum í leggöng

Sara Gabríela segir að þekkt nafn innan andlega heimsins hafi haldið viðburð á Íslandi sem var markaðsettur fyrir ungar konur með áfallasögu.

„Þær eru að sjá kontent á samfélagsmiðlum þar sem konur tala um frelsi. En svo er verið að hvetja þær til þess að fara úr fötunum og vera í stellingum sem á að vera valdeflandi en það er það ekki. Það er það ekki þegar aðrir eru að fá eitthvað út úr því.“

Sara segir að hluti af viðburðinum hafi falist í kynferðislegum athöfnum: 

„Þeir hafa farið í viðtöl og talað opið um að putta konur eða heila þær með því að gera eitthvað kynferðislegt. Ég held að þær sem hann gerði þetta við hafi ekkert upplifað að hann væri að heila þær. Þetta er frekar stórt nafn á YouTube, svona tantra-maður.“

Sjá nánar hér.

Óviðeigandi hegðun með börnum

Sara Gabríela gagnrýnir sérstaklega þegar börn eru fengin með í viðburði þar sem allir eiga að flæða og vera frjálsir:

„Ég næ ekki alveg utan um þetta með þessar seremóníur eða þessa viðburði og börn,“segir Sara og staldrar við, eins og hún vilji ekki segja meira:

„Sú sem var að halda viðburðinn var með blogg þar sem hún talar um að hún sé að reyna að gefa nýtt sjónarmið, að fullorðnir og börn ættu að hafa frelsi til þess að eiga ástarsamband.“

Hægt er að nálgast viðtalið við Söru Gabríelu í heild sinni á Spotify og Youtube.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur