fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fréttir

Íris Helga hefur verið handtekin í kjölfar dánartilkynningarinnar og er grunuð um umsáturseinelti

Ritstjórn DV
Föstudaginn 10. apríl 2026 12:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á Suðurnesjum hefur handtekið Írisi Helgu Jónatansdóttur í þágu rannsóknar á umsáturseinelti. Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir henni síðar í dag. Frá þessu greinir lögreglan á Suðurnesjum í tilkynningu. Sölvi Guðmundsson, sem sakað hefur Írisi um umsáturseinelti, steig fram í morgun til að fullvissa vini og vandamenn um að hann væri enn á lífi, þvert á það sem fram kom í Morgunblaðinu í dag þar sem andlát hans var tilkynnt.

Samkvæmt dánartilkynningu átti Sölvi að hafa látið lífið þann 13. mars á heimili sínu og að útför hafi þegar farið fram. Taldi Sölvi augljóst að Íris Helga væri á bak við þessa ótímabæru andlátstilkynningu. Heimildin greindi frá því í fyrra að minnst níu einstaklingar hefðu sakað Írisi um áreiti og umsáturseinelti, þar á meðal Sölvi sem og dagskrárgerðarmaðurinn Garpur Ingason Elísabetarson. Báðir höfðu þeir átt í ástarsambandi við Írisi um tíma. Dóttir Sölva hefur eins sakað Írisi um umsáturseinelti. Íris mætti í hlaðvarpið Fullorðins í mars á síðasta ári til að bera af sér allar sakir. Hún sagðist ekki vera eltihrellir og ætlaði að stefna þeim sem höfðu sakað hana um umsáturseinelti. Skömmu eftir að fjallað var um mál hennar í Heimildinni hótaði hún blaðamanni miðilsins lífláti.

Sjá einnig: Fyrrum stjúpdóttir meinta eltihrellisins Írísar Helgu stígur fram – „Þessi hegðun hjá þér er ógeðsleg“

Sjá einnig: Blaðamaður Heimildarinnar hefur kært morðhótun Írisar Helgu til lögreglu – „Prinsippafstaða“

Lögreglan segir í tilkynningu sinni:

„Lögreglan á Suðurnesjum hefur handtekið aðila í þágu rannsóknar á umsáturseinelti í kjölfar birtingar á dánartilkynningu í Morgunblaðinu nú í morgun. Aðilinn hefur áður verið grunaður um og sætt rannsókn vegna fjölda annarra tilvika umsáturseineltis undanfarin ár og er þeim málum ekki lokið. Lögregla hyggst fara með kröfu um gæsluvarðhald á hendur aðilanum síðar í dag. Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Allt á suðupunkti eftir leik Tindastóls og Grindavíkur: „Mjög ljótt af honum að gera þetta“

Allt á suðupunkti eftir leik Tindastóls og Grindavíkur: „Mjög ljótt af honum að gera þetta“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Óskað eftir tilnefningum til fegrunarviðurkenninga

Óskað eftir tilnefningum til fegrunarviðurkenninga