fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
Fókus

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Fókus
Miðvikudaginn 3. júní 2026 15:48

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan og rithöfundurinn Jenny Mollen setti Internetið á hliðina eftir að hún birti umdeildar myndir af sér og eldri syni sínum sem er 12 ára gamall. Á myndinni má sjá mæðginin liggja í þéttum faðmlögum í hjónarúmi en myndinni deildi Mollen með textanum: „Frumburður þinn mun verða eitraðasti kærastinn sem þú eignast.“

Mollen er gift leikaranum Jason Biggs en þau eru nú skilin að borði og sæng. Þau eiga saman tvo syni, Sid sem er 12 ára og Laxlo sem er 8 ára. Undanfarna daga hefur netið logað út af áðurnefndri mynd sem og vegna bloggfærslu sem fólki þykir vægast sagt óviðeigandi. Í bloggfærslunni, sem er með fyrirsögnina: Gerðu það. Ekki fara. Ég vil þig. Ég þarf þig. Guð minn góður, skrifar leikkonan meðal annars að hún voni að synir hennar giftist báðir konum sem hafa misst mæður sínar. Þannig muni Mollen skipta þá máli áfram. Hún segist vera að upplifa lengstu kveðjustund ævi sinnar þar sem synir hennar eru að vaxa úr grasi. Hún kallar þá kröfuhörðustu menn sem hún hefur átt í ástarsambandi við og að þegar þeir þurfi ekki lengur á henni að halda verði það ígildi sambandsslita. Loks tekur hún fram að hún voni heitt og inni að synir hennar, að minnsta kosti annar þeirra, verði samkynhneigðir.

Einn kafli úr blogginu hefur vakið sérstaka athygli en þar skrifar leikkonan:

„Fyrir nokkrum mánuðum var minn elsti að spjalla við stelpu, hún var 12 ára, en ég gat strax séð að hún var mín tegund af eitri. Hún var að ráðskast með hann og nota stór orð og hann vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Ég kvartaði undan þessu við Jason og sagðist vilja skipta mér af áður en að sonur minn yrði særður og tók fram að hún [12 ára stúlkan] væri ekki einu sinni heitari en ég. En Jason heimtaði að ég leyfði honum að gera sín eigin mistök.“

Bloggfærslan og áðurnefndar myndir hafa vakið óhug netverja sem saka leikkonuna um það sem kallast tilfinningalegt sifjaspell (e. emotional incest). Hugtakið vísar til þess þegar foreldri eða annar sem er í umönnunarhlutverki gagnvart barni fer að koma fram við barnið eins og maka eða trúnaðarvin. Foreldrið fer þá að nota barnið til að uppfylla tilfinningalegar þarfir sínar og þar með hefur barnið verið sett í eins konar umönnunarhlutverk gagnvart foreldri sínu.

Dæmi um það sem netverjar hafa sagt á Instagram sem og Reddit eru:

  • „Að faðma barnið þitt: Heilbrigt og æskilegt. Að kalla barnið kærastann þinn og birta mynd þar sem þú liggur á milli fóta þess á rúmi: óheilbrigt og óæskilegt.“
  • „Barnið þitt er ekki kærastinn þinn.“
  • „Þetta verður á netinu um ókomna tíð. Hugsaðu hvernig syni þínum mun líða með þetta eftir nokkur ár.“
  • „Synir okkar eru synir okkar en ekki makar okkar.“
  • „Hvað í fjandanum gengur að þessari konu, Jesús“

Aðrir telja að leikkonan sé misskilin. Hún og synir hennar séu augljóslega náin eins og megi sjá á umdeildu myndinni og að bloggfærslan lýsi tilfinningu sem margar mæður upplifa þegar börn þeirra eru að vaxa úr grasi. Mollen sjálf furðar sig á gagnrýninni.

„Þar sem ég er að skilja og er þar með ekki lengur vernduð af þeirri stofnun sem hjónabandið er, þá finnst fólki það hafa skotleyfi á það sem ég birti. Þetta er ótrúlegt. Það er verið að hæðast að mynd sem sýnir mig faðma 12 ára gamalt barn mitt.“

Mollen og Biggs giftu sig árið 2008 en þau kynntust við tökur myndarinnar My Best Friend’s Girl árinu áður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 6 dögum

Stórleikarinn vill hætta að greiða fimm stafa mánaðarlegt meðlag

Stórleikarinn vill hætta að greiða fimm stafa mánaðarlegt meðlag
Fókus
Fyrir 1 viku

Vesturport selur gersemar – Leikmunir og búningar sem ferðast hafa heimshorna á milli

Vesturport selur gersemar – Leikmunir og búningar sem ferðast hafa heimshorna á milli