fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fókus

Vinsæll rithöfundur stígur fram eftir 23 ára nafnleysi eftir að hún var sökuð um að vera þrír karlmenn

Fókus
Föstudaginn 10. apríl 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rithöfundur vinsælu bókaseríunnar Undir yfirborðinu (e. The Housemaid) hefur loksins stigið fram undir sínu raunverulega nafni en til þessa hefur hún ávallt komið fram undir dulnefninu Freida McFadden.

Nafn hennar er Sara Cohen og hún starfar sem læknir þegar hún er ekki að skrifa. Hún ákvað að stíga fram eftir að hafa lesið ýmsar samsæriskenningar á netinu.

„Ég er komin á þann stað á ferli mínum að vera komin með nóg af því að halda þessu leyndu. Ég er komin með nóg af fólki sem rökræðir um það hvort ég sé til eða hvort ég sé í raun þrír karlmenn. Ég er alvöru manneskja, ég er til og ég hef ekkert að fela,“ segir Cohen í samtali við USA Today. Fyrir 23 árum hafi hún ákveðið að skrifa undir dulnefni svo að ritstörfin hennar hefðu ekki áhrif á störf hennar á sjúkrahúsinu þar sem hún starfar. Á kynningarviðburðum hefur hún dulbúið sig með gleraugum og hárkollu.

Fyrsta bók hennar kom út árið 2013 en Undir yfirborðinu sem kom út árið 2022 var bókin sem kom henni á kortið. Nýlega kom út kvikmynd eftir fyrstu bókinni í seríunni og til stendur að gera aðra.

„Markmiðið mitt var að halda þessu leyndu þar til ég væri tilbúin að hætta að starfa sem læknir svo ég myndi ekki lenda í því að allir sem ég starfa með vissu af þessu og það gæti bitnað á getu minni til að sinna starfi mínu.“

Árið 2023 gat hún minnkað við sig vinnu á sjúkrahúsinu og nú tekur hún bara örfáar vaktir þar á mánuði. Cohen segir að kollegar hennar hafi þó séð í gegnum blekkingarvefinn fyrir nokkru síðan, en hafi þó þagað yfir því.

„Þau voru æðisleg með þetta,“ segir Cohen en margir samstarfsfélagar hennar voru aðdáendur bóka hennar án þess að hafa gert sér grein fyrir því að þeir væru að taka vaktir með sjálfum höfundi þeirra. Hún ákvað þó engu að síður að minnka við sig vinnuna enda erfitt að gegna tveimur ólíkum störfum án þess að missa geðheilsuna.

Henni sárnuðu sérstaklega samsæriskenningar um að bækur hennar væru ritaðar af gervigreind, en segist þó hafa hlegið að galnari kenningum á borð við að hún væri í raun þrír karlkyns höfundar. Til að byrja með ætlaði hún ekki að helga sig ritstörfum. Hún skrifaði sér til dægrastyttingar og ætlaði sér aldrei að vinna við nokkuð annað en heilbrigðisþjónustu.

„Sumir byrja að skrifa í von um að geta hætt í dagvinnunni sinni, en ég gerði það ekki. Ég var bara að gera þetta mér til skemmtunar. Ég hélt fast í læknastarfið því ég lagði hart að mér til að komast þangað og fannst starfið mjög gefandi. Ég hafði unun af því að hitta sjúklinga og hjálpa fólki.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Leyndarmálið úr æsku Steinunnar Ólínu verður enn myrkara – „Ég vildi komast lifandi heim tíl mín“

Leyndarmálið úr æsku Steinunnar Ólínu verður enn myrkara – „Ég vildi komast lifandi heim tíl mín“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona eru stjörnumerkin í rúminu

Svona eru stjörnumerkin í rúminu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ferðalangar segja íbúa þessara landa sérlega kurteisa – Sjáðu topp 10

Ferðalangar segja íbúa þessara landa sérlega kurteisa – Sjáðu topp 10
Fókus
Fyrir 5 dögum

Steinunn Ólína opinberar myrkt leyndarmál frá æskuárunum – „Hann meiddi mig“

Steinunn Ólína opinberar myrkt leyndarmál frá æskuárunum – „Hann meiddi mig“
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó aflýsir tónleikum: „Komið var í veg fyrir það að þessu sinni“

Ingó aflýsir tónleikum: „Komið var í veg fyrir það að þessu sinni“
Fókus
Fyrir 1 viku

Þessi matvæli eru sögð virka eins og megrunarlyfin vinsælu

Þessi matvæli eru sögð virka eins og megrunarlyfin vinsælu
Fókus
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna sló í gegn hjá skólastúlkum – „Það var svo sérstakt að hlusta á þig“

Áslaug Arna sló í gegn hjá skólastúlkum – „Það var svo sérstakt að hlusta á þig“
Fókus
Fyrir 1 viku

Hljópst þú apríl? – Mikill metnaður og fjölbreytni í aprílgöbbum ársins

Hljópst þú apríl? – Mikill metnaður og fjölbreytni í aprílgöbbum ársins
Fókus
Fyrir 1 viku

Manstu eftir Susan Boyle? Aðdáendur trúa því vart hvernig hún lítur út í dag

Manstu eftir Susan Boyle? Aðdáendur trúa því vart hvernig hún lítur út í dag