fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fókus

CNN biðst afsökunar á ótímabærri minningargrein um lifandi leikara

Fókus
Fimmtudaginn 9. apríl 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

CNN hefur beðið leikarann Michael J. Fox afsökunar á minningargrein sem miðillinn birti á dögunum. Fyrirsögnin var: Minning um líf leikarans Michael J. Fox. Þegar greinin fór í loftið töldu margir að leikarinn væri látinn, sem hann er ekki. CNN biður leikarann og fjölskyldu hans afsökunar í yfirlýsingu til TMZ þar sem segir að greinin hafi verið birt fyrir mistök og hafi nú verið fjarlægð.

Fox glímir við Parkinson-sjúkdóminn sem varð til þess að árið 2020 þurfti að hann að taka sér pásu frá störfum. Hann lýsti því svo árið 2024 að hann væri tilbúinn að taka að sér hlutverk þar sem hann fengi að sýna þær áskoranir sem sjúkdómnum fylgja. Hann leikur nú aukahlutverk í þriðju þáttaröð sjónvarpsþáttanna Shrinking og var mættur fyrir fáeinum dögum á kynningarviðburð þar sem hann sat á sviði með öðrum úr þáttunum og svaraði spurningum aðdáenda og fjölmiðlamanna. Talsmaður hans segir að leikarinn sé við ágæta heilsu og að fréttir af andláti hans séu stórlega ýktar.

Fox greindist með Parkinson árið 1991, aðeins 29 ára gamall, en hann greindi ekki frá því opinberlega fyrr en sjö árum síðar. Síðan þá hefur hann talað opinskátt um lífið með sjúkdóminum og hvernig það var að horfast í augu við það að hann muni líklega ekki ná að verða áttræður. Sjúkdómurinn muni draga hann til dauða einn daginn, en sá dagur er víst ekki runninn upp. Leikarinn er 64 ára gamall og sló rækilega í gegn í kvikmyndaþríleiknum: Aftur til framtíðar (e. Back to the future).

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Leyndarmálið úr æsku Steinunnar Ólínu verður enn myrkara – „Ég vildi komast lifandi heim tíl mín“

Leyndarmálið úr æsku Steinunnar Ólínu verður enn myrkara – „Ég vildi komast lifandi heim tíl mín“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona eru stjörnumerkin í rúminu

Svona eru stjörnumerkin í rúminu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ferðalangar segja íbúa þessara landa sérlega kurteisa – Sjáðu topp 10

Ferðalangar segja íbúa þessara landa sérlega kurteisa – Sjáðu topp 10
Fókus
Fyrir 5 dögum

Steinunn Ólína opinberar myrkt leyndarmál frá æskuárunum – „Hann meiddi mig“

Steinunn Ólína opinberar myrkt leyndarmál frá æskuárunum – „Hann meiddi mig“
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó aflýsir tónleikum: „Komið var í veg fyrir það að þessu sinni“

Ingó aflýsir tónleikum: „Komið var í veg fyrir það að þessu sinni“
Fókus
Fyrir 1 viku

Þessi matvæli eru sögð virka eins og megrunarlyfin vinsælu

Þessi matvæli eru sögð virka eins og megrunarlyfin vinsælu
Fókus
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna sló í gegn hjá skólastúlkum – „Það var svo sérstakt að hlusta á þig“

Áslaug Arna sló í gegn hjá skólastúlkum – „Það var svo sérstakt að hlusta á þig“
Fókus
Fyrir 1 viku

Hljópst þú apríl? – Mikill metnaður og fjölbreytni í aprílgöbbum ársins

Hljópst þú apríl? – Mikill metnaður og fjölbreytni í aprílgöbbum ársins
Fókus
Fyrir 1 viku

Manstu eftir Susan Boyle? Aðdáendur trúa því vart hvernig hún lítur út í dag

Manstu eftir Susan Boyle? Aðdáendur trúa því vart hvernig hún lítur út í dag