

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona hefur greint frá því í nýju hlaðvarpi að þrír menn hafi brotið á henni kynferðislega í þremur aðskildum málum þegar hún var barn og unglingur. Segir hún í nýrri Facebook-færslu að hún hafi fengið góð viðbrögð við hlaðvarpinu og henni hafi borist frásagnir frá öðrum þolendum en einnig ógnandi skilaboð.
Tveir þættir af hlaðvarpinu hafa verið gefnir út en hægt er að kaupa aðgang í gegnum pardus.is.
Í fyrsta þætti greindi Steinunn Ólína frá broti sem hún segist hafa orðið fyrir af hálfu manns sem kenndi henni á fiðlu, þegar hún var fjögurra ára.
Steinunn Ólína opinberar myrkt leyndarmál frá æskuárunum – „Hann meiddi mig“
Í öðrum þætti greindi hún frá broti sem hún verð fyrir þegar hún var nýbyrjuð í grunnskóla, af hálfu annars manns og svo öðru sem hún varð fyrir af hálfu þriðja mannsins þegar hún var á unglingsaldri.
Leyndarmálið úr æsku Steinunnar Ólínu verður enn myrkara – „Ég vildi komast lifandi heim tíl mín“
Steinunn Ólína segist ætla að birta sérstakan aukaþátt af hlaðvarpinu sem verði ólíkt hinum í opinni dagskrá.
„En þar sem mér eru líka farin að berast annarskonar bréf, ég er ekki að færa í stílinn, að kalla það heldur ógnandi þvingunarbréf, því hverskonar karlmenn senda konu sms skilaboð með beiðni um samtal seint að kvöldi Páskadags? Ég skal svara því: Það gera menn með með vonda samvisku. Sagan um manninn með vondu samviskuna verður líka sögð en fyrst segi ég aðrar sögur sem þurfa að heyrast öðrum til varnaðar.“