fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fókus

Undirbúa sýningu um ævi og feril Björgvins – Stjarna okkar Hafnfirðinga

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 12:55

Björgvin Halldórsson var bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2018.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti í dag að hefja undirbúning að sýningu um ævi og glæsilegan feril Björgvins Halldórssonar, eins ástsælasta listamanns þjóðarinnar og stoltan son bæjarins. Dagurinn er táknrænn, Björgvin hefði orðið 75 ára í dag. Hann lést 9. apríl síðastliðinn.

Bærinn vill með sýningunni heiðra minningu manns sem markaði djúp spor í íslensku menningarlífi og átti einstakt samband við Hafnfirðinga, eins og segir í tilkynningu.

Björgvin var fæddur og uppalinn í Hafnarfirði, alla tíð stoltur af uppruna sínum og ávallt nátengdur bænum í gegnum tónlistina, tónleika í Bæjarbíó og fjölmörg menningarverkefni. Hann var útnefndur bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2018 og varð fyrstur til að hljóta stjörnu við Bæjarbíó, viðurkenningu sem endurspeglar þá hlýju og virðingu sem bæjarbúar báru til hans.

„Björgvin Halldórsson var ekki aðeins stórkostlegur listamaður heldur einnig einstakur Hafnfirðingur sem gaf bænum sínum ómetanlega gleði, stolt og minningar. Með þessari sýningu viljum við varðveita sögu hans og gera komandi kynslóðum kleift að kynnast þeim áhrifum sem hann hafði á menningu okkar og samfélag,“ segir Orri Björnsson, formaður bæjarráðs.

Fulltrúar bæjarráðs frá vinstri: Jón Ingi Hákonarson, Valdimar Víðisson, Hildur Rós Guðbjargardóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson, Orri Björnsson, Margrét Vala Marteinsdóttir og Kristinn Andersen.

Sýningin verður unnin í nánu samstarfi við fjölskyldu og vini Björgvins, Bæjarbíó, Byggðasafn Hafnarfjarðar og aðra fagaðila. Hugmyndin að verkefninu á sér rætur í samtölum sem þegar höfðu átt sér stað við Björgvin sjálfan og hann sýndi mikinn áhuga.

Með þessari ákvörðun vill bæjarráð Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarbær sýna í verki þakklæti sitt fyrir ómetanlegt framlag Björgvins til tónlistar, menningar og bæjarlífsins alls. Hans er og verður sárt saknað, en arfleifð hans mun lifa áfram í hjörtum fólks og sögu bæjarins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi ekki verða bara stelpan sem missti pabba sinn“

„Ég vildi ekki verða bara stelpan sem missti pabba sinn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lýsir „mjög skrýtnum“ hópkynlífskvöldum með Hugh Hefner í Playboy-höllinni

Lýsir „mjög skrýtnum“ hópkynlífskvöldum með Hugh Hefner í Playboy-höllinni
Fókus
Fyrir 6 dögum

Segir að kærastinn sinn sé enginn hommi þó hann sé sífellt að sofa hjá öðrum karlmönnum

Segir að kærastinn sinn sé enginn hommi þó hann sé sífellt að sofa hjá öðrum karlmönnum
Fókus
Fyrir 6 dögum

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?
Fókus
Fyrir 1 viku

Ella setti kennarastarfið á hilluna – Þénar allt að 12 milljónir árlega í óvenjulegu starfi

Ella setti kennarastarfið á hilluna – Þénar allt að 12 milljónir árlega í óvenjulegu starfi
Fókus
Fyrir 1 viku

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða