fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fókus

Hneykslar aðdáendur Euphoria með myndskeiði

Fókus
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 06:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viðvörun: Hér fyrir neðan eru spillar fyrir 3. þáttaröð bandarísku sjónvarpsþáttanna Euphoria.

Sydney Sweeney kom aðdáendum Euphoria á óvart eftir að umdeild persóna hennar, Cassie, klæddist sem barn á meðan hún bjó til efni fyrir OnlyFans reikning sinn.

Myndskeiðið af Sweeney, sem er hluti stiklunnar fyrir það sem koma skal í þriðju og síðustu þáttaröðinni, sýnir Cassie með tíkarspena og bleikt snuð. Hún er einnig klædd í hvíta bleiu og gegnsæjan bleikan topp í myndskeiðinu.

Í stiklunni sést Cassie einnig keyra rauðan Mercedes sportbíl með blæju og gangast að giftast persónu Jacob Elordi, Nate.

„Ef fleiri þekktu mig, þá væri ég risastór,“ segir Cassie við Maddy (leikin af Alexu Demie) í annarri senu.

Barnabúningur Cassie fyrir OnlyFans fékk misjöfn viðbrögð frá áhorfendum. Margir gagnrýndu senuna harðlega á samfélagsmiðlum og spyrja hvers vegna Sweeney samþykkti að leika í svo hneyksanlegri senu.

„Af hverju þáði þessi stelpa hlutverkið?“ tísti einn einstaklingur. „Ég meina, þú ert of mikils virði, af hverju að vera leikfang fyrir svona fólk? Af hverju að niðurlægja þig svona mikið fyrir sjónvarpsþátt?“

„Ógeðslegt, hver gæti nokkurn tímann horft á þetta?“ bætti annar við. „Hvernig get ég blokkað mynd?“ spurði sá þriðji. „Ég hata þetta bókstaflega svo mikið.“

Aðrir aðdáendur vörðu hins vegar Sweeney og umdeilda myndskeiðið frá OnlyFans með því að halda því fram að Euphoria hafi innihaldið kynferðislegar senur síðan fyrsta þáttaröðin var frumsýnd í júní 2019.

„Þú ert hneykslaður af þáttum sem snúast eingöngu um kynferðisleg áhugamál og frávik í kynlífi?“ spurði einn áhorfandi. „Er persóna hennar ekki OnlyFans-fyrirsæta eða eitthvað?“ sagði annar, en þriðji aðdáandi sagði: „Hún bauð sig ekki fram í þetta. Handritshöfundarnir gerðu það.“

Þriðja þáttaröðin af Euphoria byrjaði í sýningu á HBO á sunnudagskvöld. Ólíkt fyrri tveimur þáttaröðum, þar sem aðalleikararnir voru í menntaskóla, fylgir þriðja þáttaröð persónunum fimm árum síðar þegar þær komast á þrítugsaldurinn. Lykilsöguþræðirnir eru meðal annars Rue (Zendaya) sem á í erfiðleikum með að greiða niður fíkniefnaskuldir í Mexíkó, Jules (Hunter Schafer) sem stundar nám í listaskóla og Lexi (Maude Apatow) sem vinnur sem rithöfundur í Hollywood.

Hvað varðar Cassie og Nate, þá eru þau trúlofuð. Nate rekur byggingarfyrirtæki föður síns, en húsmóðirin Cassie er heima og reynir að safna peningum fyrir brúðkaup þeirra í gegnum OnlyFans feril sinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi ekki verða bara stelpan sem missti pabba sinn“

„Ég vildi ekki verða bara stelpan sem missti pabba sinn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lýsir „mjög skrýtnum“ hópkynlífskvöldum með Hugh Hefner í Playboy-höllinni

Lýsir „mjög skrýtnum“ hópkynlífskvöldum með Hugh Hefner í Playboy-höllinni
Fókus
Fyrir 6 dögum

Segir að kærastinn sinn sé enginn hommi þó hann sé sífellt að sofa hjá öðrum karlmönnum

Segir að kærastinn sinn sé enginn hommi þó hann sé sífellt að sofa hjá öðrum karlmönnum
Fókus
Fyrir 6 dögum

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?
Fókus
Fyrir 1 viku

Ella setti kennarastarfið á hilluna – Þénar allt að 12 milljónir árlega í óvenjulegu starfi

Ella setti kennarastarfið á hilluna – Þénar allt að 12 milljónir árlega í óvenjulegu starfi
Fókus
Fyrir 1 viku

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða