fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fókus

Hefur nýjan starfsferil eftir móðurmissi

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ástralska leikkonan Nicole Kidman greindi frá því um helgina að andlát móður sinnar, Janelle Ann Kidman, hefði hvatt hana til að gerast andláts doula (e. Death Doula).

Leikkonan viðurkenndi fyrir nemendum Háskólans í San Francisco í þáttaröðinni Silk Speakers að starfsgreinin „hljómi svolítið skringilega“ en útskýrði hvers vegna hún hefði viljað leggja hana fyrir sig.

„Þegar móðir mín var að deyja var hún einmana og fjölskyldan gat aðeins hjálpað takmarkað,“ útskýrði Kidman. „Við systurnar, ég og Antonia, eigum svo mörg börn, eigum starfsframa og erum í vinnu. Við vildum samt annars hana, þar sem faðir minn Antony var látinn.“

Antony lést í september 2014, 75 ára að aldri. Á síðustu dögum móður sinnar segist Kidman hafa hugsað:  „Ég vildi óska ​​að til væri fólk sem myndi sitja við dánarbeð hlutlaust og veita huggun og umhyggju. Þetta er eitt af því sem ég mun læra.“

Andláts doulur eru einstaklingar án heilbrigðismenntunar sem veita stuðning þeim sem liggja á dánarbeðinu.

Þegar móðir hennar lést var Kidman nýkomin til Ítalíu á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum til að taka við verðlaunum fyrir bestu leikkonu fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Babygirl.

„Ég er í áfalli og verð að fara til fjölskyldu minnar,“ skrifaði hún í yfirlýsingu vegna missis móður sinnar. Kidman sagðist móður sinni þakklát fyrir að hafa mótað hana, leitt og skapað.

„Hjarta mitt er brotið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi ekki verða bara stelpan sem missti pabba sinn“

„Ég vildi ekki verða bara stelpan sem missti pabba sinn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lýsir „mjög skrýtnum“ hópkynlífskvöldum með Hugh Hefner í Playboy-höllinni

Lýsir „mjög skrýtnum“ hópkynlífskvöldum með Hugh Hefner í Playboy-höllinni
Fókus
Fyrir 6 dögum

Segir að kærastinn sinn sé enginn hommi þó hann sé sífellt að sofa hjá öðrum karlmönnum

Segir að kærastinn sinn sé enginn hommi þó hann sé sífellt að sofa hjá öðrum karlmönnum
Fókus
Fyrir 6 dögum

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?
Fókus
Fyrir 1 viku

Ella setti kennarastarfið á hilluna – Þénar allt að 12 milljónir árlega í óvenjulegu starfi

Ella setti kennarastarfið á hilluna – Þénar allt að 12 milljónir árlega í óvenjulegu starfi
Fókus
Fyrir 1 viku

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða