fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fókus

Rúrik hefur látið 5,5 milljóna verðlaunafé renna til SOS – Framburður á firði og Vatnajökli skiluðu sigri í síðustu keppni

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 17:30

Vanessa og Rúrik. Mynd: Skjáskot YouTube.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúrik Gíslason hefur undanfarin fimm ár unnið alls 5,5 milljónir króna í verðlaunafé í sjónvarpsþáttum í Þýskalandi sem hann hefur látið renna til SOS Barnaþorpanna á Íslandi. Þar að auki hef­ur hann lát­ið ágóða af fleiri verk­efn­um renna til stuðn­ings bág­staddra barna í gegn­um sam­tök­in, meðal annars með fram­leiðslu á SOS boln­um í sam­starfi við 66°N­orð­ur árin 2020 og 2021.Rúrik hefur þannig í sínum verkefnum alls aflað rúmlega 8,5 milljóna króna sem varið er til stuðnings við barnafjölskyldur í sárafátækt í verkefnum SOS í Malaví og Rúanda.

Rúrik tók ný­ver­ið þátt í sjón­varps­þætt­in­um Wunder unserer Erde – Das große GEO Quiz á þýsku sjón­varps­stöð­inni RTL, þar sem þekkt­ir ein­stak­ling­ar keppa í fræð­andi spurn­inga­keppni og þraut­um. Rúrik keppti ásamt söng­kon­unni Vanessu Mai, en í þætt­in­um keppa þrjú frægðarpör sín á milli og safna pen­ing­um til góð­gerð­ar­mála. Rúrik og Vanessa unnu 4.000 evr­ur í verð­launa­fé, sem Rúrik ákvað að láta renna til SOS Barna­þorp­anna á Ís­landi.

Í myndskeiði hér má sjá þáttastjórnendur spyrja Rúrik út í fram­burð á ís­lenska orð­inu „fjörð­ur“ og nafni Vatna­jök­uls. Að lok­um má sjá Rúrik og Vanessu leysa þraut þar sem Vanessa fjar­stýr­ir leik­fanga­bíl eft­ir leið­bein­ing­um Rúriks.

Heimsótti Rúanda

Þátturinn Rúrik í Rúanda var sýndur á RÚV í gær, mánudagskvöldið 13. apríl. Þar sýnir Rúrik á sér alveg nýja hlið og heimsækir barnafjölskyldur í sárafátækt sem stuðningur hans rennur til. Kynnti Rúrik sér hvernig fjölskylduefling samtakanna aðstoðar barnafjölskyldur við að komast úr sárafátækt og standa á eigin fótum. Þjóðarmorðið í Rúanda árið 1994 lagði veikbyggða innviði landsins í rúst og þjóðin glímir enn við afleiðingarnar.

Horfa má á þáttinn hér.

Rúrik hef­ur ver­ið einn af fjór­um vel­gjörða­sendi­herr­um SOS Barna­þorp­anna á Ís­landi síð­an 2018. Óhætt er að segja að starf­semi SOS Barna­þorp­anna fyr­ir um­komu­laus börn og brot­hætt­ar barna­fjöl­skyld­ur njóti góðs af frægð Rúriks í Þýskalandi.

Hlut­verk vel­gjörða­sendi­herra SOS er að vekja at­hygli á starfi sam­tak­anna fyr­ir börn án for­eld­raum­sjár og ósjálf­bjarga barna­fjöl­skyld­ur í sára­fá­tækt. Vel­gjörða­sendi­herr­ar SOS á Ís­landi eru auk Rúriks, Eva Ruza, Hera Björk Þór­halls­dótt­ir og El­iza Reid.

Kynna má sér starfsemi SOS barnaþorpanna og hvernig gerast má fjölskylduvinur hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi ekki verða bara stelpan sem missti pabba sinn“

„Ég vildi ekki verða bara stelpan sem missti pabba sinn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lýsir „mjög skrýtnum“ hópkynlífskvöldum með Hugh Hefner í Playboy-höllinni

Lýsir „mjög skrýtnum“ hópkynlífskvöldum með Hugh Hefner í Playboy-höllinni
Fókus
Fyrir 6 dögum

Segir að kærastinn sinn sé enginn hommi þó hann sé sífellt að sofa hjá öðrum karlmönnum

Segir að kærastinn sinn sé enginn hommi þó hann sé sífellt að sofa hjá öðrum karlmönnum
Fókus
Fyrir 6 dögum

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?
Fókus
Fyrir 1 viku

Ella setti kennarastarfið á hilluna – Þénar allt að 12 milljónir árlega í óvenjulegu starfi

Ella setti kennarastarfið á hilluna – Þénar allt að 12 milljónir árlega í óvenjulegu starfi
Fókus
Fyrir 1 viku

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða