fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fókus

Barnastjarnan úr Little Miss Sunshine orðin þrítug – lífið eftir frægðina var erfitt

Fókus
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 09:18

Abigail Breslin fagnar þrjátíu ára afmæli sínu í dag.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Abigail Breslin, sem sló í gegn aðeins tíu ára gömul í kvikmyndinni Little Miss Sunshine frá 2006, hefur á undanförnum árum opnað sig um erfiðleika sem fylgdu eftir að hún varð heimsfræg barnastjarna.

Breslin fagnar þrítugsafmæli sínu í dag, 14. apríl, en hún fæddist á þessum degi árið 1996. Af því tilefni fór Daily Mail yfir feril þessarar hæfileikaríku leikkonu sem hlaut einmitt Óskarsverðlaunatilnefningu árið 2007.

Breslin vakti heimsathygli fyrir túlkun sína á Olive Hoover, ungri stúlku sem leggur af stað í ferðalag þvert yfir Bandaríkin með fjölskyldu sinni til að taka þátt í fegurðarsamkeppni. Myndin varð óvænt stórsmellur árið 2006, hlaut fjórar Óskarstilnefningar og vann tvenn verðlaun.

Myndin hafði sín áhrif

Í viðtölum hefur Breslin sagt að ákveðnar senur í myndinni hafi haft áhrif á sjálfsmynd hennar á viðkvæmum aldri. Sérstaklega sagðist hún hafa fundið fyrir óöryggi þegar persóna hennar var sett í samanburð við hina hefðbundnu fegurðarstaðla sem fegurðarsamkeppnin í myndinni byggist á.

Í hlaðvarpinu Vulnerable með Christy Carlson Romano sagði hún frá því að hún hefði verið með púða undir fötunum til að gefa persónu sinni í myndinni fyllri líkamsbyggingu. Þegar hún sá hinar stúlkurnar í atriðunum sagðist hún hafa farið að efast um eigið útlit og velt því fyrir sér hvort hún væri sú sem liti verst út.

Síðar á unglingsárum greindist Breslin með bæði lystarstol og lotugræðgi. Hún hefur einnig sagt frá því að hún hafi verið greind með kvíða aðeins 13 ára gömul og lýst því hvernig hún lærði smám saman að lifa með þeim veruleika.

Á samfélagsmiðlum og í viðtölum hefur leikkonan ítrekað talað fyrir heilbrigðari umræðu um líkamsímynd. Árið 2016 gagnrýndi hún líkamsræktarkeðjuna Gold’s Gym harðlega fyrir auglýsingu sem beindist að líkamslögun kvenna og sagði slíkt efni geta ýtt ungum stúlkum í átt að átröskunum.

Missti föður sinn úr COVID

Breslin hefur einnig opnað sig um alvarleg áföll utan sviðsljóssins. Hún greindi frá því að hún hefði þróað með sér áfallastreituröskun eftir kynferðisofbeldi af hálfu fyrrverandi kærasta og sagði mikilvægt að samfélagið viðurkenndi að ótilkynnt kynferðisbrot væru ekki síður raunveruleg.

Þá varð hún einnig fyrir miklum persónulegum missi þegar faðir hennar, Michael Breslin, lést af völdum COVID-19 árið 2021, 78 ára að aldri. Í hjartnæmri færslu á Instagram lýsti hún honum sem hlýjum, fyndnum og ómetanlegum föður.

Þrátt fyrir erfið áföll hefur Breslin haldið áfram farsælum leikferli og komið fram í myndum á borð við Zombieland, August: Osage County og Scream Queens svo einhverjar séu nefndar.

Fyrr á þessu ári kom leikarahópur Little Miss Sunshine aftur saman á sérstakri afmælissýningu myndarinnar, tuttugu árum eftir að hún var frumsýnd. Endurfundirnir vöktu athygli og minntu á þann sess sem myndin hefur skipað í kvikmyndasögunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi ekki verða bara stelpan sem missti pabba sinn“

„Ég vildi ekki verða bara stelpan sem missti pabba sinn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lýsir „mjög skrýtnum“ hópkynlífskvöldum með Hugh Hefner í Playboy-höllinni

Lýsir „mjög skrýtnum“ hópkynlífskvöldum með Hugh Hefner í Playboy-höllinni
Fókus
Fyrir 6 dögum

Segir að kærastinn sinn sé enginn hommi þó hann sé sífellt að sofa hjá öðrum karlmönnum

Segir að kærastinn sinn sé enginn hommi þó hann sé sífellt að sofa hjá öðrum karlmönnum
Fókus
Fyrir 6 dögum

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?
Fókus
Fyrir 1 viku

Ella setti kennarastarfið á hilluna – Þénar allt að 12 milljónir árlega í óvenjulegu starfi

Ella setti kennarastarfið á hilluna – Þénar allt að 12 milljónir árlega í óvenjulegu starfi
Fókus
Fyrir 1 viku

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða