fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fókus

Frumsýna Broadway söngleikinn Draumur í dós

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 09:51

Glæsilegur hópur nemenda söngleikjadeildar Söngskóla Sigurðar Demetz setur upp sýninguna Draumur í Dós í Borgarleikhúsinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz frumsýnir hinn sívinsæla Broadway söngleik Anything Goes – Draumur í dós á litla sviði Borgarleikhússins í kvöld. Hér er á ferðinni sprenghlægileg og glæsileg sýning full af dansi, söng og ógleymanlegum lögum eftir einn merkasta lagahöfund Broadway, Cole Porter.

Sagan gerist um borð í glæstu skemmtiferðaskipi á leið frá New York til London þar sem ástin, misskilningur, dulargervi og skemmtilegar uppákomur fléttast saman í hraðsiglandi og hótfyndinni sögu. Með sígildum lögum á borð við Anything Goes, I Get a Kick Out of You, You’re the Top og Blow, Gabriel, Blow hefur verkið heillað áhorfendur í nær heila öld.

Nemendur söngleikjadeildarinnar takast hér á við glæsilegan og sígrænan Broadway-söngleik þar sem söngur, leikur og dans sameinast í kraftmikilli sviðsuppfærslu.

Verkið á sér stað í kreppunni miklu þegar allt er að fara norður og niður; svo fólkið fer á skemmtiferðaskip til að freista gæfunnar, flýja eða gleyma sér.

Leikstjóri sýningarinnar er Orri Huginn Ágústsson og tónlistarstjórn er í höndum Ingvars Alfreðssonar. Sviðs- og búningahönnun er í höndum nemenda söngleikadeildarinnar.

Söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz er sú elsta sinnar tegundar á Íslandi og hefur í rúman áratug byggt upp öfluga menntun fyrir upprennandi söngleikara. Nemendur hafa haldið áfram í háskólanám í leiklist og söngleikjum bæði hér heima og erlendis. Söngskólinn byggir á arfleifð Scala-söngvarans Sigga Demm (Vincenso Maria Demetz) sem hafði djúpstæð áhrif á íslenskt sönglíf. Í dag heldur skólinn áfram að rækta hæfileikaríka listamenn í söng, leik og sviðslistum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Hvað borgar almenningur fyrir það að Steinunn Ólína fari í starfshæfismat?“

„Hvað borgar almenningur fyrir það að Steinunn Ólína fari í starfshæfismat?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þingmaður Samfylkingarinnar uppskar gull í skemmtiskokki – Sigraði barnunga keppendur

Þingmaður Samfylkingarinnar uppskar gull í skemmtiskokki – Sigraði barnunga keppendur
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prjónaðu besta vin Línu langsokks

Prjónaðu besta vin Línu langsokks
Fókus
Fyrir 6 dögum

Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“

Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“