fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Jóhannes Haukur eftir Silfrið í gær: „Plís! Ég get ekki meir!!!“

Fókus
Þriðjudaginn 24. mars 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mér líður eins og ég sé að taka crazy pills,“ segir leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson í athyglisverðri færslu á Facebook-síðu sinni í morgun.

Í færslunni greinir Jóhannes frá því að þar sem hann er orðinn miðaldra hafi hann gaman af því að horfa á þætti á borð við Silfrið og Kastljós. Og þar sem kosningar eru á næsta leiti verði áhorfið hjá honum stífara. Það er hins vegar eitt sem fer reglulega mikið í taugarnar á honum eins og hann orðar skemmtilega í færslunni.

„Hljóðnemarnir sem eru notaðir í Silfrinu eru AÐ GERA MIG GEÐVEIKAN!!!“

Jóhannes birtir myndir máli sínu til stuðnings en hljóðnemarnir sem notaðir hafa verið upp á síðkastið eru á statífum og koma upp úr borðinu í gegnum rifu. Að hans mati er þetta langt því frá besta leiðin til að skila heim í stofu því sem fólk er að segja.

„Ég held að það sé nokkuð samþykkt í heimi hljóðvinnslu að svokallaðir hnappamækar séu langbestir í þetta,“ segir Jóhannes og taggar Bergstein Sigurðsson, einn af stjórnendum Silfursins, sem er einmitt með slíkan hljóðnema á einni myndinni.

„Í útsendingunni þar sem stjórnandinn er með slíkan hljóðnema en allir viðmælendur með þessi skrípi uppúr rifunni fyrir framan sig er áberandi munur á hljóðgæðum,“ segir hann og útskýrir svo hvers vegna þessir hljóðnemar fara svona í taugarnar á honum.

„Þessir hljóðnemar sem eru notaðir þarna uppúr rifunni nema svo mikið af óþægilegum hljóðum frá borðinu. Fólk leggur áherslu á orð sín með handahreyfingum og fiktar í blöðum og annað þarna á borðinu (Eðlilega). OG það skilar sér allt í gegnum téða hljóðnema. Það er endalaust af dynkjum og strokum sem koma úr hátölurunum mínum þegar ég er bara að reyna að hlusta á hreinar lygar frá stjórnmálamönnum.“

Jóhannes Haukur segir að við eftirgrennslan hafi hann komist að því að þessir hljóðnemar séu afleiðing vinnubragða úr Covid-heimsfaraldrinum. Hugsunin hafi líklega verið að þurfa ekki að vera í snertingu við fólk og því hafi verið talið best að gera þetta svona.

„EN ÞETTA ER VERRA HLJÓÐ!!!,“ segir hann með áherslu.

Á einni myndinni sem hann birtir, frá árinu 2019, eru allir með svokallaðan hnappamæk. Bendir hann á að heimsfaraldrinum sé lokið og kallar eftir því að RÚV taki upp fyrir vinnubrögð og setji hnappamæka á hvern og einn sem mætir í myndver til að tala í Silfrinu.

„Plís! Ég get ekki meir!!! Ég þakka þeim sem hlýddu. Góðar stundir. Fyrirvari: Kannski er þetta bara rugl í mér og ég er rugludallur. En ef svo er þá myndi ég þiggja skýringar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 1 viku

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur