fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Dauðaþögn – Snjall og spennandi krimmi sem tekur óvænta stefnu

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 6. júní 2025 20:08

Myndin er úr safni. Mynd: Unsplash.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bókin Dauðaþögn er fyrsta skáldsaga Önnu Rúnar Frímannsdóttur.

Bókin fjallar um Hrefnu, ungan og metnaðarfullan lögfræðing sem vinnur á einni virtustu og vinsælustu lögmannsstofu landsins. Eigendurnir fjórir eru vinir frá grunnskólaaldri, virtir í sínu fagi og erilinn er mikill á stofunni hjá þeim og fulltrúum þeirra og vinnudagarnir langir. Einn eigendanna, myndarlegur og vinsæll glaumgosi og kvennagull, fær Hrefnu með sér til að vinna að persónulegasta máli hans til þessa. Systir æskuvinkonu hans hefur verið myrt með hrottafengnum hætti, kona sem átti ekki sökótt við nokkurn mann að því er virðist. Foreldrar systranna eru vinir föður lögmannsins, og öll fjölskyldan er harmi slegin yfir morðinu. Þjóðin fylgist grannt með fréttaflutningi. Eftir að grunur fellur á viðskiptavin lögmannsins, þjóðþekktan glæpamann sem reynist hafa fjarvistarsönnun, hefur lögreglan lítið í höndunum vegna málsins.

Hrefna, sem er dæmigerður vinnualki, verður heltekin af málinu og hinni myrtu, Báru, sem hún átti margt sameiginlegt með. Hrefna ákveður því að fara langt út fyrir verksvið sitt og rannsaka málið á eigin spýtur með ógnvekjandi afleiðingum. Áföll úr fortíðinni koma upp á yfirborðið og líf Hrefnu verður aldrei eins og það var.

Á baksíðu bókarinnar segir þetta um söguþráðinn:

„Hún var hætt að berjast á móti. Óreglulegu kippirnir í líkamanum hættu snögglega, augun voru starandi og munnurinn skældur … Skaðinn var skeður og gjörðum hennar yrði ekki breytt. Ef hún hefði aðeins látið kyrrt liggja og hætt að grúska í fortíðinni.“

Ung kona finnst myrt á heimili sínu og rannsókn málsins miðar hægt. Hin látna virðist hafa verið dáð og elskuð af öllum sem hana þekktu og ástæður voðaverksins eru á huldu. Hrefna hefur starfað á lögmannsstofunni Skildi frá útskrift en þar sinnir hún aðallega þinglýsingum, skilnaðarpappírum og annarri skriffinnsku. Þegar morðmál dettur óvænt inn á borð hennar teygja þræðir málsins sig í ófyrirséðar áttir og Hrefna þarf að leggja allt í sölurnar til að fóta sig í nýju hlutverki. Er Hrefna að kafa of djúpt og storka örlögunum?

Dauðaþögn er eins og áður sagði fyrsta skáldsaga Önnu Rúnar Frímannsdóttur. Anna Rún er með BA-gráðu í íslensku og fjölmiðlafræði og hefur starfað sem blaðamaður í nokkur ár og hjá Morgunblaðinu frá árinu 2023.

Það er augljóst við lestur bókarinnar að Önnu Rún er tamt að vinna með texta. Bókin rennur áfram í lestri og persónum bókarinnar, sem eru nokkrar, er öllum gerð góð skil. Líðan þeirra og áföllum er lýst með þeim hætti að lesandinn finnur jafnvel til með glæpamanninum. En hver á sök og hver er saklaus þegar öllu er á botninn hvolft? Er það heppni eða eitthvað annað sem ræður því hver telst góður og hver slæmur þegar kemur að almenningsálitinu? Meðan sumum verður hált á svellinu tekst öðrum að fóta sig betur á því. 

Hver er gerandinn er spurning sem lesandinn spyr sig að frá fyrstu blaðsíðu þar til í lokaköflum bókarinnar, því margir eru kallaðir til og Önnu Rún tekst að halda gerandandum leyndum með afar snjöllum hætti. Dauðaþögn er einstaklega vel heppnuð frumraun í heimi glæpasagnanna, snjall og spennandi krimmi sem tekur óvænta stefnu.

Anna Rún sagði frá bókinni í viðtali í júní í fyrra.

Útgefandi: Salka 2024.
Kilja. 314 bls.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur